Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Sofie Hermansen Eriksdatter: Þetta er að „færast nær“

„Ég var á heimili mínu í Reykjavík og mér varð mjög brugðið og hringdi í fjöl­skyldu mína,“ segir Sofie Hermansen Eriksdatter, dönsk kona sem er búsett hér á landi, um viðbrögð sín í kjölfar skot­árásarinnar í verslunar­miðstöðinni Field’s í Kaupmanna­höfn í gær þar sem þrír létust og enn fleiri særðust og þar af fjórir alvarlega eftir að ungur maður skaut á fólk með riffli. Viðbúnaðar­stig í Kaupmanna­höfn hefur verið hækkað auk þess sem viðburðum hefur verið aflýst. Þess má geta að Jónshús var opið Íslendingum í kjölfarið og á mbl.is kemur fram að þeir Íslendingar sem þangað leituðu hafi annaðhvort verið inni í versl­un­ar­miðstöðinni eða við hana þegar að skotárás­in átti sér stað. Annað kvöld verður svo haldin minningar­athöfn fyrir utan Field’s.

„Þau voru í áfalli og sögðu að öll neyðar­þjónusta í Kaupmanna­höfn væri í viðbragðs­stöðu vegna þessa og að það væri mjög sorglegt að þetta hefði gerst,“ segir Sofie við Mannlíf um fólkið sitt í Danmörku.

Það var bara tíma­spurs­mál hvenær eitt­hvað álíka myndi ger­ast í Danmörku.

Sofie bendir á skot­árásina í Ósló í síðustu viku og að hún hafi haft sömuleiðis mikil áhrif á sig og hafi fundið til með Norð­mönnum. „Þetta er að „færast nær“ og það var bara tíma­spursmál hvenær eitthvað álíka myndi gerast í Danmörku og svo gerðist það viku síðar. Ég tel að Danmörk sé almennt öruggur staður og fólk ætti að halda áfram lífi sínu eins og það er vant en samfélagið þarf að styrkja félags­lega sjálfbærni og aðstoða fólk sem glímir við alvarleg andleg veikindi miklu meira til að koma í veg fyrir að svona nokkuð gerist aftur.“

Sofie segist halda að þessi árás muni hafa áhrif á fólk í allt sumar og segir hún að fólk á Íslandi sem hún hefur hitt sé líka sorgmætt vegna þessa voða­atburðar.“

Sofie er skrif­stofustjóri Bókmennta­verðlauna Norður­landaráðs með aðsetur í Norræna húsinu og hefur búið á Íslandi í fjögur ár. Böndin á milli þjóðanna tveggja, Íslands og Danmerkur, eru sterk. Er hægt að styrkja börnin enn frekar og þá hvernig? „Það væri hægt með meiri samskiptum yngra fólks og þá sérstak­lega bæði menningar­lega og menntalega séð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá