Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Viktor er þakklátur fyrir samstarfsfólk: „Viðkomandi fannst ég draga niður stétt hjúkrunarfræðinga“

Myndin sem Viktor á við
Myndin sem Viktor á við Mynd: Guðrún Ósk Guðjónsdóttir

„Á þessari mynd var ég að taka mín fyrstu skref sem hjúkrunar­fræði­nemi innan veggja Land­spítalans fyrir þremur árum síðan. Fljótlega eftir að ég deildi þessari mynd á samfélags­miðlum fékk ég að vita að það voru ekki allir sáttir með ráðningu mína,“ segir hjúkrunar­fræðingurinn Viktor Andersen á Instagram-síðu sinni. Viktor segist hafa ákveðið að segja ekki neitt en það hefur þó hvílt á honum síðan hversu mikið fordómar geta eyðilagt út frá sér.

Myndin sem Viktor á við

„Þetta snerist um að einn af yfir­mönnum hjúkrunar innan Land­spítalans þurfti að tjá sig um ráðningu mína á 12G Hjarta-, lungna- og augn­skurðdeild og þar með hugsanlega að hafa áhrif á ráðningu mína. Viðkomandi persónu hef ég aldrei hitt né talað við, en viðkomandi gat samt myndað sér skoðun á mér sem hjúkrunar­fræði­nema að þarna ætti ég ekki heima út frá þessari einu mynd. Viðkomandi fannst ég draga niður stétt hjúkrunar­fræðinga og fannst greini­lega neikvætt að ég yrði ráðinn inn fyrir veggi spítalans,” segir Viktor sem hefur alltaf verið opinn um kynhneigð sína. Auk þess hefur hann tjáð sig opinber­lega um fegrunar­aðgerðir sem hann hefur gengist undir og áreitis sem hann hefur orðið fyrir vegna útlits.

„Sem betur fer talaði starfs­reynsla mín og meðmæli sínu máli og deildinni 12G tók vel á móti mér og tók ekki vel í þessa skoðun þessa einstaklings. Ég veit fyrir vissu að ég er vel liðinn af samstarfs­fólki mínu, þau þreytast ekki á að segja mér það og þau treysta mér. Sjúklingarnir eru ánægðir með þá hjúkrun sem ég veiti, ég fæ kveðjur frá þeim eftir að heim er komið þar sem þeir vilja að ég viti hvað þeir mátu mig mikils,“ segir hann og bætir við að skoðun einstaklingsins á honum hafi verið byggð í gegnum samfélags­miðla.

„Ráðning mín á að vera óháð kynhneigð og kyntjáningu. Ég er svo þakklátur fyrir samstarfs­fólkið mitt, það stóð með mér, þjálfuðu mig og gáfu mér tækifæri og ég fæ að vera ég sjálfur. Ég elska starfið mitt og á 12G finnst mér best að vera enda er starfs­andinn þar rosalega góður. En ég er langt í frá full­kominn og ég reyni alltaf að gera betur í dag en í gær,“ segir Viktor að lokum en DV sagði fyrst frá reynslu Viktors.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt