Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Barátta á Bústaðavegi: „Kom þetta að mér í nautsformi og bar ég fyrir mig hendurnar og brann illa“

Segja má með sanni að drauga­gangur af allra versta gerð hafi herjað á íbúa við Bústaðaveg í Reykjavík,það herrans ár 1994.

Kemur fram í aðal­uppslætti DV þann 5. maí þetta ár,  að óvættir hafi verið hraktir á brott úr húsi við Bústaðaveg í Reykjavík.

Var rætt við miðil sem og íbúa sem lýstu algjöru ófremdar­ástandi í íbúðinni:

„Það skipti engum togum að kvöldið sem ég kom frá þessum miðli varð allt nánast vitlaust hér inni. Það má segja að það hafi verið sambland af eldglæringum og norður­ljósum,“ sagði Hreiðar Jónsson, eigandi íbúðarinnar við Bústaðaveg.

Hann lýsti því í DV að þetta hefði byrjað þremur árum fyrr þegar hann hefði byrjað að sjá „óskýranlegar myndir fyrir augum sér.“

Þetta var allsvakalegt, og rafmagns­tæki urðu óvirk; þjóvarna­kerfi fór í gang þegar mest gekk á í íbúðinni á Bústaðar­vegi.

Tveimur vikum fyrir viðtalið áður­nefnda hafði Hreiðar leitað til bresks miðils; þá hafði ýmislegt gengið á; meðal annars hafi einhverju verið brugðið um hálsinn á konu hans í atganginum. Þá hafi ágangurinn verið svo mikill að þjófavarna­kerfið hafi farið í gang í nærliggjandi verslun:

„Þetta hélt svo áfram í nokkrar nætur, rúmið gekk til og það var hreyfing á öllu hvar sem við settumst niður, sérstak­lega þegar við báðumst fyrir. Í eitt skipti kom þetta að mér í nauts­formi og þá bar ég fyrir mig hendurnar og brann illa á þeim: En bruninn kom frá mér sjálfum því ég hef svo mikinn kraft í mér,“ sagði Hreiðar við DV.

Hann hafði samband við Njál Torfason miðil, fyrir tilstuðlan Sálar­rannsóknar­félags Íslands; hófst Njáll strax að hreinsa út óværuna, og lýsti ástandinu þannig:

„Þegar ég kom hingað fann ég fyrir fólki hér. Ég liðsinnti því, fór með faðirvorið og bað það að fara sína leið, betri leið, og fara sem sagt upp. Ég sá allar þessar verur en annað slagið var eins og það kæmi svona rafspenna. Ég fór herbergi úr herbergi og fór ekki úr þeim fyrr en ég var búinn að hreinsa hvert og eitt og loka þeim. Þá meina ég ekki að loka dyrunum heldur hreinsa þau. Eftir að búið var að hreinsa herbergi var eins og hleypt væri loft­þrýstingi af manni. Það er eins og maður hafi búið við yfir­þrýsting í langan tíma.“

Það vakti athygli blaða­manns DV að Njáll og Hreiðar teiknuðu báðir verurnar sem voru á ferli, á blað, hvor í sínu lagi; bar þeim saman í öllum megin­atriðum. Sögðu þeir aðra veruna á teikningunum fulltrúa hins illa og geta tekið á sig ýmsar myndir; hin var rauð að lit; fulltrúi reiðinnar. Hún hafi hvolfst inn í sjálfa sig og orðið að eldi.

Njáll sagði við blaðamann DV að hann starfaði sem nuddari, en að hann hafi verið skyggn og hafi aðstoðað fólk sem hafi átt í vandræðum með eitt og annað; hann sagðist búa yfir ógnar­krafti sem komi frá ljósinu eða Guði almáttugum.

Njáll vildi alls ekki kalla þetta særingar, frekar eins konar samninga­viðræður – þar sem hann hjálpaði fólki eða öndum að komast inn á rétta braut; sagði ótrúlega mikla orku fara í þetta – en af henni hafi hann átt nóg af; og hafi á skömmum tíma beint verum í sex húsum á rétta braut:

„Svo þegar þetta er búið birtir til og ég sé ekkert annað en kertaljós, hvíta krossa og svo kemur engill sem fer um allt á eftir. Þegar ég hef lokið verki mínu er eins og búið sé að létta af mér fleiri, fleiri kílóum. Mér líður ótrúlega vel,“ sagði Njáll.

Kom fram að bæði Njáll og Hreiðar lýstu því að samhliða þessum látum hafi verið mikil orka; til að mynda hafi Hreiðar oft og tíðum þurft að fara með rafmagns­tæki á heimilinu í viðgerð, en þegar hann hafi komið að ná í þau hafi hann fengið þau til baka með þeim orðum að ekkert væri að þeim. Það var reyndar eftir að Njáll hreinsaði út að Hreiðar og konan hans gátu horft á sjón­varpið í friði.

DV ræddi einnig við Konráð Adolfsson, forseta Sálar­rannsókna­félags Íslands, sem sagði að árið 1994 hefði félaginu borist á milli sex og sjö hundruð beiðnir um aðstoð vegna óvætta í húsum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning