Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Nýr formaður Samfylkingarinnar: „Ég hef ekki staðið á stalli heldur leitast við að berskjalda mig“

Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frosta­dóttir for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

Eins og allir áttu von á þá er Kristrún Frosta­dóttir nýr formaður Samfylkingarinnar. Var sjálf­kjörin því enginn þorði að taka slaginn við hana; enda er hún vonar­stjarna jafnaðar­manna – skín skært.

Eftir að ljóst varð að enginn myndi bjóða sig fram gegn henni og að nýja hlut­verkið væri hennar, þá flutti hún ræðu á ársþingi flokksins núna rétt áðan.

Kristrún sagði meðal annars að eitt af stóru verkefnum Samfylkingarinnar væri að opna flokkinn upp á gátt fyrir almenningi; eiga samtal við flokks­menn á jafnréttis­grundvelli:

„Ég lýsi því yfir hér að þetta verður megin­verkefni Samfylkingarinnar næsta árið; að opna flokkinn: Að halda áfram að eiga samtal við fólk um allt Ísland. Við munum boða til efnislegrar umræðu um þá mála­flokka sem við setjum í forgang fyrir næstu ár, halda opna fundi og málþing. Kalla til sérfræðinga; fólkið á gólfinu – fólk sem er hokið af reynslu og ungt fólk sem vill móta framtíð sína hér á landi.“

Bætti við:

„Þetta er ákall til ykkar kæru félagar, um að koma með í þetta verkefni; ákall til þeirra sem þetta land byggja um að virkja samstöðu. Við getum öll lagt okkar af mörkum; virkjum jafnaðar­taugina og gerum þetta skipulega; tökum samtalið; öflum upplýsinga og vinnum úr þeim með átta­vitann rétt stilltan.“

Hún vill að Samfylkingin sýni ábyrgð í orði sem á borði:

„Það gerum við með því að vera ábyrg; ekki með því að skora ódýrt; ekki með því að eltast við læk, eða lúta þeim sem hafa hæst á samfélags­miðlum; þeim sem eru reiðastir í þjóðmála­umræðunni og nota stærstu orðin. Við verðum að brjótast úr bergmáls­hellinum.“

Kristrún vill bæta stöðu Samfylkingarinnar og sagði í ræðu sinni að staða flokksins væri ekki nægilega góð; það væri hellings verk að vinna:

„Staðan í lands­málunum er ekki ásættanleg. Síðustu Alþingis­kosningar voru talsverð vonbrigði, þar sem stóru línurnar eru lagðar. Fráfar­andi formaður axlaði sína ábyrgð. En við vitum öll í hjarta okkar að það er ekki nóg að skipta bara um forystu­sveit. Enda kallaði Logi (Einarsson fráfar­andi formaður Samfylkingarinnar) sjálfur eftir breyttu skipulagi og öðruvísi forystu.“

Kristrún sagðist hafa ákveðið „að svara því kalli – eftir að hafa ferðast vítt og breitt um landið; haldið mikinn fjölda opinna funda með fólki í heima­byggð þess. Ég hef ekki staðið á stalli, heldur leitast við að berskjalda mig og standa með báða fætur á gólfinu; til að hlusta á fólk í augnhæð. Fátt hefur gefið mér eins mikla pólitíska innsýn og innblástur.

Þessi samtöl hafa mótað mig og hér stend ég í dag: Með skýrar og sterkar áherslur sem og hugmyndir í farte­skinu sem ég hef kynnt ítarlega á undan­förnum vikum.“

Kristrún segir að „velferðar­málin kalla á alla okkar athygli; mál sem snerta allt daglegt líf fólks hér á landi; hvernig það kemst á milli staða. En trúverðug­leiki okkar þar byggir líka á trúverðugri efnahags­stefnu; valkosti við efnahagspólitík núverandi ríkis­stjórnar sem yfir­gnæfir allar þeirra aðgerðir: Öllu heldur aðgerða­leysi. Okkar efnahags­stefna tekur mið af hagsmunum heildarinnar; heildar­mynd, skilningi á því hvernig velferðar­kerfið verður best rekið sem og fjár­magnað.“

Hinn nýbakaði formaður Samfylkingarinnar telur að „skammtíma­lausnir skila sér í meiri kostnaði síðar; skuldir finnast víðar en í bókhaldi ríkis­sjóðs. Stórtækar framfarir á Íslandi velta á því að hér komist til valda stjórn­málaflokkur sem sér þessa stóru mynd og getur veitt Íslandi forystu með fast land undir fótum, og samfellu í hugsun; ekki tilviljunar­kenndum fjár­útlátum og stefnu­lausu aðhaldi sem engum árangri skilar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning