Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Stripparinn sem hvarf – Fannst látin á Búrfelli tíu dögum seinna

Eitt dular­fyllsta manns­hvarf og andlát erlends ríkis­borgara hér á landi verður að telja hvarf og andlát erótíska dansarans frá Ungverja­landi, hennar Angelu Cseho árið 1996.

Angela dó alltof ung

Angela Cseho starfaði sem erótískur dansari í Reykjavík en þann 3. maí 1996 heyrðist síðast frá henni. Hún hafði verið stödd á Selfossi í stuttri ferð austur yfir fjall. Umfangs­mikil leit að stúlkunni bar fyrst um sig ekki árangur en Morgun­blaðið sagði svo frá leitinni:

Umfangs­mikil en árangurs­laus leit

UMFANGSMIKIL leit fjölda manna að ungversku stúlkunni Angelu Cseho bar engan árangur um helgina. Leitað var á landi og úr lofti um svæðið frá Gilsfirði í vestri og að Horna­firði. í gær var unnið að því að draga saman og meta fyrir­liggjandi upplýsingar um málið, og í framhaldi af því verður ákveðið hvaða meðferð málið hlýtur, að sögn Geirs Jóns Þóris­sonar, aðal­varðstjóra hjá lögreglunni í Reykjavík, sem stjórnað hefur leit að konunni. Geir Jón segir að Rannsóknar­lögregla ríkisins hafi fylgst með gangi málsins til þessa. Ekkert liggi hins vegar fyrir um að af brot hafi verið framið. Í gær var ekki leitað en dregnar voru saman upplýsingar og skýrslur og unnið að undir­búningi þess að ákveða næstu skref í leitinni. Ekkert hefur spurst til Angelu Cseho síðan að kvöldi föstu­dagsins 3. maí, þegar hún var stödd við Selfoss og hafði þá ætlað stutta ferð austur yfir fjall. Í leitinni um helgina yoru eknir allir helstu vegir á leiðinni frá Gilsfirði að Horna­firði í leit að bifreiðinni sem Angela sást síðast á. Það er rauður Nissan Sunny 1985, með skráningar­númerið Y-15733. Auk þess var leitað árangurs­laust úr lofti í þyrlu Landhelgis­gæslunnar.

Billinn sem Angela var á

Breytt lýsing

Geir Jón Þórisson sagði að í ljós væri komið að Angela Cseho hafi ekki verið eins klædd og segir í þeim Lýsingum, sem gefnar hafa verið út. Buxur, sem talið var að hún hafi verið í, hafa fundist á heimili hennar og nú liggur fyrir að hún var klædd í skræpóttar bláar stretch-buxur.

Nokkrum dögum síðar fannst lík Angelu á furðu­legum stað. Í hlíðum Búrfells lá lík hennar í tíu daga en var talið að hún hefði hrapað í fjallinu og látist samstundis. Ekki er þó vitað hvers vegna hún var stödd á Búrfelli sem var ill kleift að sögn sérfræðinga. Svo virðist sem hún hafi ætlað að ganga á fjallið en til þess var hún vel búin. Morgun­blaðið sagði frá fundinum: 

Fannst látin í hlíðum Búrfells

LÍK ungversku stúlkunnar Angelu Cseho, sem leitað hefur verið undan­farna daga, fannst í suðvestur­hlíðum Búrfells í fyrrinótt. Talið er að hún hafi hrapað í fjallinu og látist samstundis. Lík konunnar var flutt til Selfoss. Starfs­menn í Búrfells­virkjun fundu bíl Angelu fastan í aurbleytu á vegar­slóða í Búrfells­skógi í Þjórs­árdal. Lögreglan í Reykjavík tilkynnti lögreglunni á Selfossi um fundinn kl. 19.30 í fyrra­kvöld. Vegar­slóðinn liggur vestur með Búrfelli og suður fyrir fjallið og er vart fær öðrum bílum en jeppum. Slóðinn er lítið ekinn og er illa farinn eftir veturinn. Starfs­mennirnir voru á eftirlits­ferð þegar þeir óku fram á rauða Nissan Sunny-bifreið Angelu tæpa fjóra km frá Búrfells­virkjun. Þar hafði hann verið spólaður niður í ræsi og sat þar fastur. Að sögn lögreglunnar voru engin spor á svæðinu né önnur ummerki enda er slóðin líklega um tíu daga gömul. Bíllinn var læstur og eðlilega frá honum gengið. í honum var ýmislegt sem tilheyrði Angelu. Kallaðar voru út þrjár björgunar­sveitir úr Rang­árvalla­sýslu og fleiri björgunar­sveitir annars staðar af landinu tóku þátt í leitinni. í fyrstu var leitað með sporhundi frá bílnum í átt að Búrfells­virkjun og var það svæði fínkembt, að sögn lögreglu.

Klukkan 4.05 tilkynnti félagi í Hjálpar­sveit skáta í Hafnar­firði, sem hafði sporhund meðferðis, að konan hefði fundist mjög ofarlega í Búrfelli í suð- vestur­enda fjallsins. Hún var látin þegar að var komið. Fjallið nánast ókleift á þessu svæði Staðurinn þar sem hún gekk upp í fjallið er um 900 m frá þeim stað sem hún yfirgaf bílinn. Þar gekk hún upp brattan gilskorning og segir lögregla að hún virðist hafa ætlað að komast upp á fjallstoppinn um hann. Svo virðist sem hún hafí hætt við það og leitað uppgöngu örlítið sunnar þar sem mikið kletta­belti stendur út úr fjallinu. Þar er talið að hún hafi hrapað um 300 metra í stórgrýti og miklum bratta. Við rannsókn málsins fékk lögreglan á Selfossi vana fjall­göngumenn í lið með sér til þess að athuga hvort fjallið væri kleift á þessu svæði en svo reyndist varla vera. Lögreglan dregur þá ályktun af því að konan hafi ætlað að klifra upp kletta­beltið en fallið áður en hún komst upp á fjallið. Konan var mjög vel búin til fjalla­klifurs, í góðum skóm og kulda­galla. GSM-farsími fannst á konunni og er talið hugsanlegt að hún hafi ætlað upp á fjallið til þess að ná síma­sambandi og láta vita af sér. Lögreglan telur af ummerkjum að dæma að slysið gæti hafa gerst fyrir um tíu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning