Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Íslandsvinur þungt haldinn í Moskvu eftir dularfullt höfuðhögg

Ólympíuskákmótið árið 1980, Sovíetríkin gegn Íslandi.
Ólymp­íu­skák­mótið árið 1980, Soví­et­ríkin gegn Íslandi. Mynd: Only the Best :-))

Einn besti skákmaður sögunnar, Anatoly Karpov liggur þungt haldinn á spítala í Moskvu eftir að hafa fengið höfuð­áverka eftir fall. Hann hafði rétt áður kallað eftir því að stríð Pútíns yrði stöðvað.

Anatoly er marg­faldur heims­meist­ari í skák

Karpov, sem starfar sem þingmaður hefur undan­farið kallað eftir því að stríð Pútíns í Úkraínu verði stöðvað. Hann liggur nú í dái á spítala í Moskvu-borg með alvarlega höfuð­áverka en fregnir herma að á hann hafi verið ráðist við þinghúsið og hann hafi meiðst vegna „óheppilegs falls“.

Hinn 71 árs Anatoly Karpov var á áttunda áratug síðustu aldar einn allra besti skákmaður heims en hann var marg­faldur heims­meistari. Árið 2011 heimsótti Karpov Ísland þar sem hann var gestur Tafl­félags Reykja­víkur. Telfdi hann meðal annars sýniskák við Friðrik Ólafsson stór­meistara og fjöltefli í Ráðhúsi Reykja­víkur. Þá studdi Ísland Karpov þegar hann bauð sig fram til forseta FIDA árið 2010.

Eftir að hann lagði hrókinn í skúffuna, snéri hann sér góðgerða­málum og stjórn­málum. Er Karpov þekktur sem mikill hollustu­maður Pútíns en hefur þó kallað eftir því að stríðinu í Úkraínu hætti „svo friðsamlegt fólk hætti að deyja.“ Er hann enn einn úr röðum elítu Rússlands til að hljóta skjótan dauða eða alvarleg meiðsl frá því að stríðið byrjaði.

Sjá einnig: Rússneskir ólígarkar í útrýmingar­hættu – Yfirferð

Samkvæmt Daily Mail er hann nú á tauga­deild hinnar frægu Sklifosovsky stofnunar þar sem honum er haldið sofandi vegna alvarleika meiðsla hans. Talið er að Karpov hafi hlotið meiðslin einhvern tíma á laugardags­nótt. Nákvæmlega hvenær og hvernig hann slasaðist er enn á huldu. Andrey Kovaley, aðalmaður Hreyfingu rússneskra frumkvöðla, segir Karpov hafa verið sleginn í höfuðið á leið sinni út af þing­húsinu í Moskvu. Sagði hann ennfremur að háls þing­mannsins hefði brákast og höfuð­meiðsl eftir að hafa verið barinn í hausinn af óþekktum árásar­mönnum en hann fannst meðvitundar­laus.

Talsmaður Skák­sambands Rússlands, Kirill Zangalis segir fregnir af barsmíðum séu „gervi­fréttir e. fake news.“ Þá neitar Sofia, dóttir Karpovs, þeim fregnum einnig.

Aðrir hafa sagt hann hafa dottið óheppilega og jafnvel verið drukkinn þegar slysið varð.

Í viðtali við sjónvarpsstöð í Kazakhstan sagði Karpov að hann vonaði að stríðið myndi hætta fljótt. Bætti hann við: „Þegar allt er á botninn er hvolft, þá er það venjulegt fólk sem er fórnar­lömbin. Venjulegt fólk berst, stjórn­málamenn og ofurstar ákveða en venjulegt fólk berst. Borgarar deyja. Ég er ekki einu sinni að tala um hermenn og herforingja. Nei, ég gat aldrei ímyndað mér að Rússar og Úkraínu­menn færu í stríð. Ég á marga vini í Úkraínu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Fíllinn kom út úr skóginum í veg fyrir manninn
Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“