Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Í símanum var þáverandi framkvæmdastjóri LÍÚ

Jón Óðinn Waage
Jón Óðinn Waage

Eftir // Jón Óðinn Waage

Ég vann í allnokkur ár á lítilli lögmann­stofu hér í bæ. Mitt hlutverk var að sjá um innheimtuna. Við vorum að vinna fyrir lítið trygginga­félag. Krafa á mann sem var með litla útgerð austur á landi var komin í lögfræði­innheimtu.

Þá fékk ég símtal. Í símanum var þáverandi framkvæmda­stjóri LÍÚ. Hann var hinn almennilegasti, spurði mig hverra manna ég væri og það tók okkur ekki langan tíma að finna sameiginlegt vensla­fólk.

Síðan snéri hann sér að erindinu. Hann sagði mér að skila því til trygginga­félagsins að ef að krafan væri ekki tafar­laust tekin úr innheimtu þá myndi hann láta alla sína skjólstæðinga sem að væru með tryggingar hjá þeim færa þær eitthvað annað.

Ég þráaðist aðeins við, spurði hvort að skuldin væri ekki rétt. Framkvæmda­stjórinn sagði að hún væri alveg rétt, málið væri bara að skuld­arinn gæti ekki greitt hana núna, hann myndi gera það þegar að hann gæti en þangað til yrði trygginga­félagið að taka því rólega og veita útgerðar­manninum svigrúm.

Mér fannst hann flottur.

Skuldin var aftur­kölluð úr innheimtu­ferlinu samdægurs. Krafan var greidd þegar að úr rættist hjá útgerðar­manninum.

Þetta fékk mig til að hugsa. Þarna var framkvæmda­stjóri hjá stórum samtökum sem að gaf sér tíma til að aðstoða trillu­karl út á landi og gerði það með því að beita sér af fullum þunga. Mér fannst hann flottur.

Mikið vildi ég að almenningur hefði svona menn til að verja sína hagsmuni. Núna þegar bilið á milli örfárra auðugra og megin­þorra almennings er orðið gríðarlegt þá get ég ekki annað en hugsað hvort að til þess kjörnir forkólfar samtaka eins og ASÍ hafi verið að vinna að einhverju gagni.

Hefur almenningur virkilega ekki þann þunga að hægt sé að beita sér eins og umræddur framkvæmda­stjóri gerði?

Jón Óðinn Waage

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Desember nálgast óðum
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Vildi hitta nýja kærastann og beitti fyrrverandi ofbeldi

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“