Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Sunnefa – Dæmd fyrir blóðskömm, beið drekkingar í átján ár og bauð kvalara sínum birginn

Myndin er samsett
Myndin er sam­sett

Svokallað Sunnefumál er eitt lengsta sakamál Íslands­sögunnar. Það er kallað svo eftir Sunnefu Jóns­dóttur, en hún var árið 1739 dæmd til dauða fyrir blóðskömm. Sunnefa var aðeins sextán ára, en hún hafði eignast barn með bróður sínum, Jóni Jónssyni, sem einnig var dæmdur til dauða. Jón var fjórtán ára. Þau systkini bjuggu á Borgar­firði eystri, ásamt móður sinni og stjúpföður.

Málið hefst þegar Sunnefa verður ófrísk og elur í fram­haldinu barn, sem er óskilgetið. Hún er færð í yfirheyrslur hjá prestinum í sókninni og þar greinir hún frá því að bróðir hennar sé faðir barnsins.

Þau systkini eru þá færð í vörslu sýslu­manns, Jens Wíum í Fljótsdal. Þar eru þau bæði dæmd til dauða fyrir blóðskömm. Jens lét lífið stuttu síðar og sonur hans, Hans Wíum, tók við sýslumanns­embættinu.

Sunnefa eignast annað barn og ásakar sýslumann á Alþingi

Þegar Sunnefa og Jón hafa verið í fangavist í á þriðja ár, fæðir Sunnefa annað barn.

Eftir fæðinguna liggur Sunnefa mikið veik af bólusótt. Á meðan hún er fárveik yfir­heyrir Hans Wíum hana einn síns liðs um faðerni barnsins. Sunnefa viðurkennir að Jón, bróðir hennar, sé einnig faðir annars barnsins.

Hans réttar í fram­haldinu yfir þeim báðum og dæmir þau til dauða í annað sinn, fyrir blóðskömm.

Þegar Sunnefa og Jón hafa setið í fangavist í á fjórða ár, þá nítján og sautján ára gömul, er farið með þau á Alþingi. Þar var dómurinn í fyrra málinu stað­festur, en allt ætlar um koll að keyra þegar Sunnefa upplýsir að það sé alls ekki bróðir hennar sem sé faðir seinna barnsins, heldur sýslu­maðurinn sjálfur, Hans Wíum.

Hans hafði verið sýslu­maður í Vestmanna­eyjum áður en hann tók við embætti föður síns. Þar hafði hann átt tvö börn í lausaleik.

Varðlið Hans Wíum

Sunnefa og Jón sátu í varðhaldi og biðu dauða­dómsins í átján ár. Loksins stefndi í að þau yrðu endanlega sýknuð, en áður en þeim var sleppt dó Sunnefa Jóndóttir. Jóni Jónssyni var sleppt úr haldi og hann sendur úr landi.

Málið allt hefur verið talið mikill áfellis­dómur yfir Hans Wíum. Í gegnum tíðina hafa þó afar margir varið hann og skellt sökinni á Sunnefu; sagt hann fórnar­lamb lyga­sjúkrar konu sem reyndi að leggja mannorð hans í rúst. Eða að hún hafi dregið hann á tálar.

Aðrir hafa sagt að þarna hafi óvinir sýslu­mannsins verið að reyna að spinna upp lygar til þess að koma höggi á hann og Sunnefa hafi einungis verið peð í því valda­tafli.

Lítið hefur verið sýnt fram á hlið Sunnefu í málinu öllu í gegnum tíðina.

Lengi vel var talið að Sunnefu hafi að lokum verið drekkt, en sú virðist ekki hafa verið raunin.

Rödd Sunnefu

Kristín Amalía Atla­dóttir var forsprakki sýningar sem sett var upp um Sunnefu í Menningar­miðstöð Fljótsdals­héraðs sumarið 2019.

„Ég verð þó að viðurkenna að ég skil ekki hvernig menn hafa getað varið Hans Wíum. Ég reyndi það, en kemst alltaf að sömu niður­stöðu. Það er varla hægt að líta fram hjá algjöru valdleysi kvenna sem ríkti á þessum tíma og á seinni tímum,“ sagði Kristín Amalía um mál Sunnefu í Frétta­blaðinu á sínum tíma.

Kristín nefndi sem dæmi full­yrðingar um að Sunnefa hafi verið lauslát þar sem hún hafi eignast tvö börn utan hjóna­bands. Á sama tíma var Hans Wíum sagður hafa „lent í því óláni að eignast tvö börn fyrir hjónaband“. Svona var lengi vel fjallað um málið.

„Þetta er alls staðar og fer að stuða mann. Það er farið með konur og valda­litla karlmenn eins og minnihluta­hópa,“ sagði Kristín meðal annars.

Í gögnum um Sunnefumál kemur meðal annars fram að systkinin hafi bæði verið notuð sem ókeypis vinnuafl hjá sýslu­manninum eftir að þau voru dæmd.

„Þetta eru ólæsir unglingar gegn löglærðum embættis­manni. Þau samþykkja öll lögfræðileg atriði sem Hans Wíum vill, enda vita þau ekkert hvað þau þýða. Það er ljóst af niður­stöðum dóma að embættis­mönnum mörgum hverjum hefur misboðið embættis­færslur Wíums og rangsleitni,“ sagði Kristín Amalía í viðtalinu við Frétta­blaðið fyrir uppsetningu sýningarinnar. Eftir rannsókn sína á málinu taldi hún sig hafa fengið nokkuð góða mynd af sýslu­manninum og líkaði ekki það sem hún sá.

„Ann­að­hvort er mað­ur­inn alger­lega van­kunn­andi í lögum og rétt­ar­fars­reglum svo jaðrar við hálf­vita­skap eða hann vill þeim eitt­hvað illt“

Í seinni tíð hefur það jafnvel verið dregið í efa að Jón hafi verið faðir fyrra barns Sunnefu. Því hefur verið haldið fram að stjúpfaðirinn sé líklegri; að hann kunni að hafa brotið á Sunnefu. Hann var talinn hafa gifst móður systkinanna til þess að komast yfir bæinn. Ef hann hefði verið sóttur til saka, hefði ekki verið nokkur möguleiki á því að þau Sunnefa yrðu náðuð. Fæstir trúðu því hins vegar að Sunnefa og Jón yrðu dæmd til dauða, vegna þess hve ung þau voru.

Ef til vill ekki myrt, en ekki haldið á lífi

Sunnefa lést að öllum líkindum árið 1757. Hún hafði þá mátt þola slæman aðbúnað og þó hún hafi ef til vill ekki verið myrt, má leiða líkur að því að ekkert hafi verið gert til að halda henni á lífi.

Fjaðra­fokið sem Sunnefa olli á Alþingi þegar hún sagði frá því að Hans Wíum væri faðir seinna barnsins, er sögulega mjög merki­legur atburður. Með því sýndi hún mikið hugrekki. Hún sagði frá því að sýslu­maðurinn hefði neytt hana til þess að lýsa bróður hennar föður seinna barnsins.

Ekki einungis var Sunnefa að hefja upp raust sína og tala gegn embættis­manni, heldur bar hún sakir á manninn sem hún var í fangavist hjá – og vissi vel að hún myndi þurfa að fara aftur til að þingi loknu.

Hún hefur því vitað vel hvers konar refsingar kynnu að bíða hennar þegar hún færi til baka í varðhald á Skriðu­klaustur. Þrátt fyrir þetta allt sagði Sunnefa sögu sína á þingi og lét ekki þagga niður í sér.

Í átján ár beið Sunnefa Jóns­dóttir eftir drekkingu, sem aldrei varð. Frelsið fékk hún heldur aldrei.

Baksýnis­spegill þessi er endur­birtur en höfundur hans er Gunnhildur Kjerúlf Birgis­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá