Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

„Þegar ég las dagbækurnar sá ég svart á hvítu hvað samband hennar og JBH var sjúkt“

Mæðgurnar Þóra Hreinsdóttir og Valgerður Þorsteinsdóttir.
Mæðgurnar Þóra Hreins­dóttir og Val­gerður Þor­steins­dóttir.

Valgerður Þorsteins­dóttir, dóttir Þóru Hreins­dóttur, sem afhenti Stundinni dagbók móður sinnar, ritar færslu sem ber yfir­skriftina:

Mín skoðun (og vonandi mitt síðasta svar um þetta mál).

Hefst svona:

„Ég hef misst marga nákomna og farið í fleiri jarðar­farir en ég get talið. Samt sem áður hef ég bara skrifað eina minningar­grein. Ég skrifaði hana til besta vinar míns, sem fór án þess að ég fengi að kveðja hann. Hann var aðeins 25 ára gamall.“

Hún bætir þessu við:

„Ég elskaði Þóru Hreins­dóttur, móður mína, og geri enn. Á meðan hún lifði vissi hún að hún átti mig að. Mamma gat leitað til mín með hvað sem er. Frá því að ég man eftir mér, fannst mér það vera hlutverk mitt að passa upp á hana. Við vorum nánar alla tíð, þó að við hittumst stundum sjaldan. Við áttum kaldhæðin og dökkan einka­húmor, sem fáir aðrir skildu, og við hlógum mikið saman. Ég gekk líka í gegnum tímabil þar sem ég var sár og reið út í hana fyrir margt sem ég skildi ekki. Ég ræddi það við hana og dró ekkert undan. Stundum voru þetta erfið samtöl.“

Hún segir að þrátt fyrir allt þá „hætti ég aldrei að elska mömmu og standa með henni. Það tók mig tíma að sætta mig við að alkóhólismi er sjúkdómur sem margir ná ekki að sigrast á og að aðstand­endur gætu oft lítið sem ekkert gert til að breyta því. Síðustu árin í lífi mömmu var ég, sem betur fer, farin að skilja það og gremjan fékk að víkja fyrir umburða­lindi, skýrari mörkum og dýpri skilningi.“

Valgerður rifjar upp að „þegar leiðir skildu 2016 vorum við sáttar við hvor aðra. Mér fannst ég ekki eiga neitt ósagt, við hana, sem ég þyrfti að skrifa í minningar­grein.

Árið 2010 klippti ég á öll samskipti við Soffíu, systur mína. Ég hef aldrei séð eftir því, enda ekki vanhugsuð ákvörðun. Ég hafði nóg af ástæðum, en fáar til að halda áfram að hafa hana í mínu lífi. Ég hefði líklegast átt loka á hana fyrr, en ég var (og er) meðvirk og átti bara eina alsystur. Ég gaf henni ótal sénsa, en einhverntímann fá allir nóg. Soffía má hafa sínar skoðanir og viðra þær eins og hún vill. Ef henni finnst hún hafi verið góð dóttir af því að hún skrifaði minningar­grein (ef hún gerði það… Ekki eitthvað sem ég hefði áhuga á að lesa) þá er það frábært mál, fyrir hana a.m.k…“

Valgerður segir að „ég ákvað ekki að birta dagbækur mömmu til að gera einhverjum karli (JBH) sem ég þekki ekki neitt, einhvern miska. Ekki heldur til að hjálpa konu, sem ég þekki ekki, með málaferli sem ég veit lítið um, ekki til að ráðast á Alþýðu­bandalagið, Samfylkinguna eða starfs­feril Jóns Baldvins Hannibals­sonar almennt, ekki til að fá athygli, ekki til að skemma vináttu JBh og BS við pabba og konuna hans, ekki af því að ég er vond, heimsk og/eða geðsjúk… Ég birti dagbækurnar alls ekki til að smána ímynd móður minnar, enda sá ég ekkert í dagbókar­skrifum hennar sem gat verið henni til skammar (fyrir utan nokkrar staf­setningar­villur sem voru jafn slæmar og mínar, þegar ég var á sama aldri).“

Bætir við:

„Skömmin var ekki hennar!! Þegar ég las dagbækur og færslur á miðum frá þessum tíma, í lífi mömmu, sá ég svart á hvítu hvað samband hennar og JBH var sjúkt. Ég sá stelpu, á aldur við son minn, sem var búin að upplifa miklar breytingar og var að mörgu leiti á gatna­mótum í lífinu. Ungling með brotna sjálfs­mynd, sem leið ekki vel og kennara, virtan af þjóð­félaginu, nýta sér sakleysi hennar vanlíðan og örvinglan. Ég sá hvernig hún minnkaði og brotnaði þegar leið á lesturinn. Kennarinn sem ætlaði að hjálpa henni, þegar hún þurfti á hjálp að halda, vildi ekki bara að hún gæti náð lands­prófi, af því að hann var kennarinn hennar… Hann vildi stinga af með henni og líklega eiga hana, éta hana, nota hana o.sfrv., eða ekki… Hvað átti hann að gera við þessi löngu læri??

Mér finnst hann hefði átt að láta þau í friði. Það er mín skoðun!! Mér fannst hreinlega rangt að sitja á þessu og segja ekki neitt við neinn um málið.“

Valgerður nefnir að „eins og aðrir hef ég séð, í fjöl­miðlum og samfélags­miðlum, hópinn af fólki sem hefur ásakað Jón Baldvin um kynferðislegar árásir, af ýmsum toga, stækka og stækka undan­farin áratug amk. Heyrt einhvern orðróm lengur. Ég hef líka séð hvernig JBH og BS hafa þaggað niður þessar frásagnir og hvernig þau spila sig sem fórnar­lömb lyga­sjúkra kvenna með rang­hugmyndir og/eða illgjarnt eðli.

Sann­leikurinn skiptir mig miklu máli. Ég þoli ekki lygar og fátt fer eins í taugarnar á mér og misnotkun, vald­níðsla og almenn ósann­girni. Þeir sem hafa haft mig á Facebook í nokkur ár ættu að vita það. Ég er núverandi eigandi nokkurra kassa með gömlum úrklippum, ljós­myndum, bréfum, dagbókum, teikningum o.fl. þ.h. Ég ræð hvað ég geri við mitt dót og ég ræð hvernig ég bregst við umhverfi mínu, upplýsingum, samskiptum o.s.frv.“

Valgerður ljær máls á því að „mamma, sem unglingur, hafði ekkert að skammast sín fyrir. Ég skammast mín ekki fyrir þá skoðun mína eða að hafa „grafið upp drauga fortíðar“ í óþökk fjöl­skyldunnar. Mér fannst grein Stundarinnar snilldar­lega vel unnin! Það var talað við nokkur vitni frá þessum tíma og ekkil mömmu, sem allt staðfesti það sem stóð í skrifum mömmu.

Mætingar­kladdar úr Hagaskóla staðfestu margar dagsetningar úr dagbókinni. Viðtal við JBH úr Haga­skóla­blaðinu kom lítillega við sögu, ásamt setningum úr hans eigin sjálfs­ævisögu og síðast en ekki síst var tveggja blaðsíðna hand­skrifað bréf Jóns Baldvins Hannibals­sonar birt í fullri lengd! Frábær heimildar­vinna!! Sýnir, svo sannarlega, að þrátt fyrir að margir kunni vel við JBH og BS, hefur margt sem frá þeim hefur komið varðandi meint fórnar­lömb Jóns Baldvins, að öllum líkindum, verið total bs (bullshit) uppspuni og lygar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning