Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Vináttan finnst víða

Ég var mjög vinamargur í mennta­skóla. Var meira að segja nokkuð vinsæll, þannig séð. Var tvisvar sinnum kosinn sá fyndnasti í skólanum og óð í kvenfólki. Ok, þetta með kven­fólkið er lygi. Mennta­skólaárin mín voru reyndar fleiri en flestra og því kynntist ég sennilega fleiri en góðu hófi gegnir. Mér fannst bara svo gaman í skólanum að ég mátti ekki vera að því að útskrifast strax. En svo breyttist þetta smá saman eftir útskrift.

Flestir vina minna voru fluttir suður í frekara nám en ég hírðist áfram á Egils­stöðum eins og bjáni. En svo kom að því að ég flúði Héraðið og fór til Reykja­víkur. Þar eignaðist ég nokkra góða vini í háskólanum og kynntist barns­móður minni og svo voru nokkrir æskuvinir mínir í borginni þannig að mér leiddist ekki, þvert á móti.

En svo tók lífið við. Smá saman kvarnaðist úr vina­hópnum. Ég er samt ekki að tala um vinslit. Fólk flutti til útlanda, aftur heim í Hérað eða gleymdi sér í hjóna­böndum og barns­eignum. Geldust eins og ég hef oft kallað það. Ég náði þó að halda í tvo góða vini sem ég get dregið með mér í bíó og spilað borðspil með.

En ég er líka nokkuð naskur í að verða mér út um vini á hinum ótrúlegustu stöðum. Dóttir mín þolir ekki hvað ég tala oft við ókunnuga en þannig hef ég alltaf verið, alveg frá því að ég var smápolli á Eskifirði í denn. Og er varla að fara að breytast í bráð.

Sennilega er furðulegasta vinátta mín við hana Marian gömlu. Marian er ríflega sjötug kona frá Wales en hún hefur búið á Englandi í áratugi. Og hvernig kynntist ég henni gæti einhver viljað spyrja. Nú auðvitað í Skrafli á Facebook. Við lentum einhvern tíma á móti hvort öðru í Skrafl­leik á Facebook og byrjuðum að spjalla. Svo urðu leikirnir fleiri og spjallið lengra. Svo hætti ég að nenna að spila en vildi endilega spjalla áfram og nú sirka 8 árum síðar höfum við spjallað annað slagið á Messenger og í síma og hún hefur sent mér jóla­gjafir í nokkur skipti. Það var svo í sumar sem ég og dóttir mín hittum hana í fyrsta skipti er við feðginin kíktum á Billie Eilish tónleika í London. Hún var jafn fyndin og skemmtileg og hún hafði alltaf verið, skaut á mig látlaust eins og góðum Breta sæmir, en alltaf í góðu.

Sem sagt, það sem ég vildi segja hér á síðustu blaðsíðu blaðsins er að vináttan kemur í mörgum formum og finnst á furðulegustu stöðum, sé maður opinn fyrir því.

Hægt er að lesa nýjasta tímarit Mannlífs hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning