Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

„Stundum borgar sig að dreyma stórt“

Það er veisla framundan

Haukur Páll Árnason
Haukur Páll Árnason Mynd: John Russell

Tónlistar­maðurinn Haukur Páll Árnason er einn þeirra sem standa að tónleika­viðburði á Hjarta­torgi á Menningar­nótt.

Upphaf­lega stóð til að halda fremur litla tónleika en áformin tóku fljótt að stækka eftir að skipuleggjendur fengu styrk úr Menningar­nætur­potti Lands­bankans og Reykja­víkurborgar.

Haukur Páll segir að upphaf­lega hafi hugmyndin verið að bjóða upp á tónleika með tónlistar­fólki sem tengist stúdíói þeirra, þar á meðal KA-OSS, R.O.K og Trausta~. Aron, söngvari KA-OSS, hafi síðan rekist á auglýsingu um styrki úr Menningar­nætur­pottinum.

„Ég hafði þá strax samband við umboðs­konuna mína Sonju til að kanna þetta nánar. Góðar hugmyndir verða að veruleika þegar hún tekur við keflinu,“ segir Haukur Páll.

Styrkur fékkst til verk­efnisins og í kjölfarið var ákveðið að hugsa stærra. Matthias Moon og Árni, trommu­leikari KA-OSS, bættust í hóp skipuleggjenda og hefur undir­búningur staðið yfir af fullum krafti.

Fannst gaman að fara þangað sem krakki

Markmiðið er að sögn Hauks Páls að skapa lifandi og aðgengi­legan viðburð þar sem ólíkir tónlistar­menn koma saman. Auk tónlistarinnar verða ýmsir sölubásar á torginu, meðal annars frá Wabi Sabi, Palestínu Blóm og Rigensborg, auk þess sem rakarar frá Studio 110 verða á staðnum. Hefjast tónleikarnir klukkan 14:00 og lýkur þeim klukkan 21:00

Haukur Páll segir Hjarta­torg hafa orðið fyrir valinu vegna stað­setningar þess og sögu. Hann minnist sérstak­lega gamla Hjarta­garðsins, sem var á árum áður vinsæll samkomu­staður hjólabretta­fólks, lista­manna og veggja­listafólks.

„Sjálfur elskaði ég Hjarta­garðinn og fannst alltaf gaman að kíkja þangað sem krakki en ég sé einnig mögu­leikana sem torgið býður upp á í dag,“ segir hann.

Hann segir lífið á torginu hafa aukist mikið á síðustu árum og það sé sérstakt að fá að leggja sitt af mörkum til menningar­lífs þar. Útitónleikar í miðborginni gefi fólki jafnframt færi á að rekast óvænt á tónlist, staldra við og taka þátt í stemningunni.

Fjöl­breytni verður í fyrirrúmi í tónlistar­dagskránni og segir Haukur Páll að skipuleggjendur vilji gefa ólíkum flytjendum tækifæri til að koma fram fyrir stóran hóp gesta. Vonin sé einnig sú að gestir uppgötvi tónlistar­fólk sem þeir hafi ekki áður heyrt í.

„Svo var draumur að fá Saint Pete og Inspector Spacetime til að koma fram. Stundum borgar sig að dreyma stórt,“ segir Haukur Páll.

Ýmislegt framundan hjá Hauki

Sjálfur hefur hann í nógu að snúast um þessar mundir. Auk þess að koma fram undir eigin nafni er hann meðlimur í nýju hljóm­sveitinni R.O.K og starfar jafnframt áfram sem pródúser og laga­höfundur með öðrum lista­mönnum.

Næstu daga er þó Menningar­nótt efst á baugi.

„Menning er virkilega mikil­vægur hluti af samfélaginu. Þetta dregur okkur saman, myndar sterkari heild og eykur kærleika milli ólíkra hópa,“ segir Haukur Páll.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt