Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Harmleikur á Óshlíð rannsakaður: Dularfullur dauði Kristins

Fyrir helgi gróf lögreglan á Vestfjörðum upp líkams­leifar ungs manns sem lést í umferðar­slysi í Óshlíða fyrir 49 árum síðan. Rannsaka á hvort andlátið hafi borið fram með öðrum hætti en áður var talið.

Það var þann 23. september árið 1973 er leigubíll með tveimur farþegum keyrði af Óshlíðar­vegi í Bolungarvík og valt niður grýtta hlíðina. Hinn nítján ára Kristinn Haukur Jóhannesson lést í slysinu en hin tvö, leigu­bílstjórinn og kona sem var farþegi, sluppu bæði með lítil meiðsl.

Kristinn Haukur Jóhann­es­son

Vísir sagði fyrst frá slysinu daginn eftir og sagði bílinn hafa farið af veginum í blindbeygju og oltið niður 60-70 metra langa snar­bratta grjót­skriðu og alla leið í flæða­málið. Þá kom einnig fram í fréttinni að pilturinn hafi kastast út úr bílnum á miðri leið og beðið bana er hann lenti í skriðunni. Þau sem lifðu slysið af hafi náð að komast upp á veg til að tilkynna lögreglunni á Ísafirði um slysið.

Í næstu frétt á sínum tíma kom fram að stýrið í bílnum hafi ekki verið í sambandi en ekki hefði þó verið hægt að segja með fulltri vissu að það hafi verið ástæðan fyrir útaf­akstri bílsins. Aukreitist kom fram síðar að bremsan hefði hugsanlega fests með þeim afleiðingum að bíllinn fór út af veginum.

Kristinn Haukur Jóhannesson var fæddur árið 1954 og var frá Barða­strönd. Kjör­foreldrar hans voru þau Jóhannes Hjálmar Sveinsson, bóndi í Miðhlíð innri og Anna Soffía Össurar­dóttir Thoroddsen en þau áttu einnig dóttur.

Samkvæmt Rúv hefur fjöl­skylda Kristins haft efasemdir um rannsókn málsins og fundist dældirnar í bílnum ekki nægilega miklar miðað við að hann hafi oltið niður skriðuna. Hefur fjöl­skyldan því farið þess á leit að rannsókn málsins verði tekin upp að nýju og fengu það samþykkt með dóms­úrskurði.

Réttar­læknir mun nú reyna að greina áverkana og skera úr um það hvort þeir hafi hlotist í bílslysi eða borið að með öðrum hætti.

Í frétt Rúv segir að lögreglu­stjórinn á Vestfjörðum segi að enginn hafi verið yfir­heyrður í tengslum við málið en vildi að öðru leyti ekki tjá sig. Fram kemur í tilkynningu lögreglu að þó svo að langur tími sé liðinn frá andlátinu séu taldar líkur á að hægt verði að upplýsa tildrögin nánar en ekki er vitað hversu langan tíma rann­sóknin mun taka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Foreldrarnir vildu fá fram hvað sagt var á fundi sonar þeirra með starfsfólki Icelandair fyrir starfslok hans
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis