Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Skora á íslensk stjórnvöld vegna umhverfsislyss Arnarlax: „Stöndum vörð um íslenska náttúru!“

NASF á Íslandi, Lands­samband Veiði­félaga, Náttúru­verndar­samtök Íslands og fleiri samtök og fyrirtæki skora á yfirvöld vegna umhverfis­slyss Arnarlax í Arnar­firði en þá sluppu 80.000 norskir eldis­laxar úr opinni sjókví Arnarlax á Vestfjörðum.

Eftir­farandi áskorun var send á stjórn­völd:

Áskorun til stjórn­valda vegna

umhverfis­slyss Arnarlax í Arnar­firði 

Villtum stofnum fórnað

Nýverið sluppu um 80.000 frjóir norskir eldis­laxar úr opinni sjókví Arnarlax á Vestfjörðum. Villti laxa­stofninn á  Íslandi telur um 50.000 laxa. Slysa­sleppingin er grafal­varlegt umhverfis­slys sem Arnarlax hefur verið  sektað um 120 milljónir króna fyrir og mun hafa alvarleg  erfða­fræðileg áhrif á villta laxa­stofna á Íslandi.  

Slysa­sleppingin er enn fremur stað­festing þess að fögur fyrirheit fyrir­tækja í sjókvíaeldi eru fölsk og opinberar hún  einnig skeytingar­leysi fyrir­tækisins gagnvart hagsmunum  nátt­úrunnar þegar ákveðið er að mótmæla sektar­greiðslunni. 

Náttúrunni fórnað

Erfða­mengun villtra stofna í kjölfar slysa­sleppinga er óafturkræft umhverfis­slys. Ekki stendur þó aðeins villtum laxa­stofnum ógn af sjókvíaeldi því iðnaðurinn skilur einnig eftir sig mengun á hafsbotni, öðrum villtum stofnum stafar ógn af lúsafári og sjúkdómum og ímynd óspilltrar náttúru Íslands er í hættu. 

Byggðum fórnað

Á Íslandi eru rúmlega 2.250 lögbýli sem treysta á tekjur frá laxveiðiám og skapar laxveiðin margfalt fleiri störf en  sjókvíaeldi mun nokkurn tíma gera. Efnahagslegt virði lax- og silungs­veiða nemur 13,5 milljörðum króna árlega.  Slysa­sleppingar sem þessi rýra verðmæti þeirra  náttúru­legu auðlinda sem fjöl­skyldur á lands­byggðinni  treysta á. Orðspor Íslands sem uppruna­lands hrein­leika er líka svert.

Lærum af reynslu annarra

Ætla stjórn­völd að gera sömu mistök og aðrar þjóðir sem  ala frjóan og framandi lax í opnum sjókvíum? Er stefna  stjórn­valda að þurrka út villtan lax á Íslandi og þar með  hlunnindi og ferða­þjónustu í laxveiðiám fyrir ofsagróða  norskra sjókvíaeldis­fyrirtækja? Af hverju eru íslensk stjórn­völd að gefa erlendum stór­fyrirtækjum auðlindir okkar? 

Áskorun til stjórnvalda

Undir­rituð samtök og fyrirtæki skora á matvæla­ráðherra  að stöðva laxeldi í opnum sjókvíum áður en það verður  um seinan. Kallað er eftir trúverðugri áætlun sem miðar  að því að banna alfarið laxeldi í sjókvíum hér við land. 

Það er ljóst að ef stjórn­völd hafa raun­verulegan áhuga á  að vernda villta laxa­stofna og náttúru Íslands, þá þarf að  stöðva fiskeldi í opnum sjókvíum. Á meðan verið er að  stunda sjókvíaeldi á Íslandi þarf að gera það eftir allra  ströngustu stöðlum. Þar ber helst að nefna NASCO  staðlana sem ítrekað hafa verið sendir á stjórn­völd.  Undir­rituð samtök og fyrirtæki skora á matvæla­ráðherra  að innleiða þessa staðla og gefa engan afslátt af þeim á  meðan verið er að stunda þessa mengandi starfsemi í  fjörðum landsins. 

Einnig er skorað á ferðamála­ráðherra að vernda þau  2.250 lögbýli sem treysta á laxveiði­hlunnindi og eru  ómetanlegur partur af ferða­þjónustu landsins.  

Stöndum vörð um íslenska náttúru!

NASF á Íslandi, Lands­samband Veiði­félaga, Icelandic Wildlife Fund, Laxinn Lifi, Landvernd,  Náttúru­verndar­samtök Íslands, Ungir Umhverfis­sinnar, Lax-á, Veiði­flugur, Veiðivön, Höklar, Six Rivers Project,  Stóra-Laxá, Fuss, Laxá á Ásum, Starir, Miðfjarðará, Eleven  Experience, Norðurá, Stanga­veiðifélag Reykja­víkur  (SVFR), Hreggnasi, Vatns­dalsá, Veiði­félagið, Fish Partner og Flugu­búllan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Foreldrarnir vildu fá fram hvað sagt var á fundi sonar þeirra með starfsfólki Icelandair fyrir starfslok hans
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis