Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Svavar bætir Austurlandi við sig

Neskaupsstaður
Nes­kaups­staður

Dóms­mála­ráð­herra hefur sett Svavar Pálsson, sýslu­mann­inn á Norð­ur­landi eystra, tíma­bundið sem sýslu­mann á Aust­ur­landi frá 1. nóv­em­ber 2024 til og með 31. októ­ber 2025. segir í til­kynn­ingu frá stjórn­ar­ráð­inu. „Lárus Bjarna­son, skip­aður sýslu­maður á Aust­ur­landi lætur frá sama tíma af emb­ætti fyrir ald­urs sakir. Lárus var skip­aður bæj­ar­fó­geti og síðar sýslu­maður í Norður-Múla­sýslu árið 1989 og síðan sýslu­maður á Aust­ur­landi árið 2015.

Svavar Pálsson mun gegna báðum emb­ætt­unum á fram­an­greindu tíma­bili.
Sú ákvörðun að setja sýslu­mann yfir tvö emb­ætti sam­ræm­ist áherslum yfir­valda í mál­efnum sýslu­manna, þar á meðal að bæta þjón­ust­una við almenn­ing með því að fella niður áhrif umdæm­is­marka og auka hag­kvæmni við rekstur emb­ætt­anna. Þannig hefur Kristín Þórð­ar­dóttir, sýslu­mað­ur­inn á Suð­ur­landi, verið sett tíma­bundið yfir emb­ætti sýslu­manns í Vest­manna­eyjum frá októ­ber 2023 og Birna Ágústs­dóttir yfir sýslu­manns­emb­ættið á Vest­ur­landi frá júní 2024.

Innan umdæm­is­ins á Norð­ur­landi eystra getur almenn­ingur nálg­ast þjón­ustu sýslu­manns á fimm starfs­stöðvum; Á Akureyri, Húsavík, Siglu­firði, Þórshöfn og Dalvík. Á Aust­ur­landi er þjón­ustan aðgengi­leg á Seyð­is­firði, Eski­firði, Egils­stöðum og Vopna­firði. Um þjón­ustu og starfs­stöðvar sýslu­manns­emb­ætt­anna er nánar fjallað á vef­síðu emb­ætt­anna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Landið

Landið

Andri Snær rifjar upp fórn­irnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Tuttugu ár eru liðin frá því að vatni úr fossaröðinni í Fljótsdal var veitt inn í Hálslón
Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Landið

Leð­ur­blakan í Fellabæ enn ófundin

Landið

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Landið

Öllu starfs­fólki Heil­brigð­is­eft­ir­lits Aust­ur­lands sagt upp

Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu