Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Hjólastólaaðgengi nýbygginga víða í ólagi: „Klárlega verið að brjóta réttindi fólks“

Aðgengi fyrir fatlaða er víða í ólestri, jafnvel í nýbyggingum. Þótt skýr ákvæði um aðgengi séu í gildi virðist þeim oft ekki vera fylgt og eftirlits­aðilar aðhafast ekkert. Fólk sem jafnvel hefur keypt íbúðir sem eiga að vera með fullu aðgengi kemst að raun um annað þegar flutt er inn. Erfiðlega gengur að sækja málin og flestir hrökklast á endanum burt og selja íbúðir sínar.

Aðgengisátak Öryrkja­bandalags Íslands vakti á dögunum athygli á skertu aðgengi fyrir hjóla­stóla við nýbyggingu í Voga­hverfinu í Reykjavík. Þrátt fyrir að rampur sé til staðar eru vankantar á hönnuninni með þeim hætti að hann er ónothæfur. Verkefna­stjóri hjá Öryrkja­bandalaginu segir alltof algengt að ekki sé farið eftir lögum og reglum um aðgengi í nýbyggingum.

Mynd af inngangi nýbyggingarinnar var birt inni á Facebooksíðu Aðgengis­átaks Öryrkja­bandalags Íslands. Á henni má sjá ótal mistök í hönnuninni sem skerða aðgengið. Rampurinn er of mjór, ekkert handrið er meðfram honum, rými til þess að snúa hjólastól er ekki til staðar og í ofanálag virðist hurðin opnast út. Hún myndi því lenda á einstaklingi í hjólastól sem væri þar fyrir framan og ýta viðkomandi út af pallinum. Auk alls þessa er dyra­bjalla of há.

Mynd tekin við fjöl­býl­is­húsið í Voga­hverf­inu.

Gangar og inngangar eigi að vera aðgengilegir öllum

Við færslu sem sýnir myndina á síðu Aðgengis­átaks ÖBÍ bendir einn aðili á það í athugasemd að ekki sé um að ræða aðal­inngang. Tröppur séu fyrir innan innganginn og því sé þetta ekki ætlað hjóla­stólum. Við aðal­inngang hússins megi finna allt annað aðgengi. Slíkt skiptir þó ekki máli, þar sem byggingin fellur undir ákvæði algildrar hönnunar, sem þýðir að gangar og inngangar eigi að vera aðgengi­legir öllum, óháð því hvort um sé að ræða aðal­innganga eða ekki.

Stefán Vilbergsson, verkefna­stjóri hjá Öryrkja­bandalagi Íslands útskýrir í samtali við Mannlíf að fjölbýlishús í dag eigi að vera byggð samkvæmt ákvæðum um algilda hönnun. „Það eiga allir að geta farið eftir almenningi; þú átt semsagt að geta farið hindrunar­laust í gegnum húsið og í gegnum alla innganga. Þú átt að geta komist inn í geymsluna þína og inn á öll svæði sem eru ætluð fyrir íbúa. Ef fólk er að tala um að það sé ætlast til þess að fatlað fólk komi inn um einn inngang, en allir aðrir geti farið út bakdyramegin eða hvernig sem það er, þá er klárlega verið að brjóta réttindi fólks.“

Stefán Vil­bergs­son, verk­efna­stjóri hjá Öryrkja­banda­lagi Íslands.

Alvarlegir vankantar á flóttaleiðum

Stefán hefur fengið það staðfest frá Húsnæðis- og mannvirkja­stofnun að ákvæðið sé rétt túlkað með þessum hætti. Hann bendir einnig á að líklega sé um flótta­leið að ræða, sem beinlínis nauðsynlegt sé að allir hafi aðgang að.

„Þú þarft að geta komist í gegnum allar hurðir og annað slíkt, í flótta­leið, þótt þú hafir ekki afl til þess að opna þungar hurðir.“ Stefán bendir á að oft sé látið hjá líða að gera ákveðna hluti varðandi flótta­leiðir með fullnægjandi hætti. Gjarnan séu ekki settir upp sjálf­virkir opnarar á hurðir í umferðar­leið, eða ekki tryggt að tog sé ekki þyngra en svo að allir ráði við það. Aðspurður segir hann ástandið enn slæmt hvað þetta varðar og að ekki sé farið eftir ákvæðinu í mörgum nýbyggingum.

„Í nýbyggingum á allt aðgengi að vera í lagi; í þessum byggingum sem falla undir kröfur um algilda hönnun. Þannig að allir; fatlað fólk og allur almenningur, börn, gamalmenni og hver sem er, eiga að geta farið um hindrunar­laust og með sama hætti og aðrir. Það er ennþá verið að klúðra þessu og oft með sama hætti. Þá eru bæði eldvarnar­hurðir og útihurðir alltof þungar, og enginn sjálf­virkur opnari. Það eru oft háir þröskuldar og síðan er íbúum beint í gegnum bílastæða­kjallara, en þar er oft ekki sjálf­virkur opnari á eldvarnar­hurðum. Eldvarnar­hurðir eiga að lokast þétt; þeirra hlutverk er fyrst og fremst að vera lokaðar. Þannig að fólk þarf oft að bisa við að reyna að opna þær. Ef þú hefur ekki handstyrk eða ert í hjólastól, þá ræðurðu ekkert við það.“

Kærði aðgengismál í íbúðarhúsi sínu

Þrátt fyrir að ákvæðið sé til staðar, og eigendum og verktökum skylt að fara eftir því, virðist eftir­fylgni ábótavant. Í vor féll þó úrskurður eftir að íbúi kærði aðgengismál til úrskurða­nefndar umhverfis- og auðlinda­mála. Íbúðin sem um ræðir er staðsett í Tanga­bryggju. Íbúinn kærði atriði á borð við þau sem Stefán nefnir, auk annarra. Í fyrsta úrskurði dæmdi nefndin verktakanum ekki í óhag. Ýmsir vankantar voru viðurkenndir en þrátt fyrir það ákvað nefndin að aðhafast ekkert í málinu. Í fram­haldinu lagði íbúinn málið fyrir umboðs­mann Alþingis, sem skyldaði nefndina til þess að taka málið upp aftur. Auk þess lagði Öryrkja­bandalag Íslands fram álit í málinu. Í fram­haldinu var úrskurðinum snúið við að miklu leyti.

„En brota­lömin er bæði sú að verktakar leggja fram teikningar, sem síðan verða oft breytingar á í ferlinu,“ segir Stefán. „Þannig að þú ert oft ekki að kaupa það sem þú heldur að þú sért að kaupa. Síðan eru leyfis­veitendur og eftirlits­aðilar, sem eru mikið til þeir sömu, að hleypa þessu í gegn. Það hefur dugað lítið að kvarta og kæra hingað til. Fólk hefur frekar hrakist út og orðið að selja íbúðir, sem það keypti sem aðgengilegar.“

Stefán segir ástandið í þessum málum því langt frá því að vera í lagi. „Við sjáum talsvert af þessu. Allt í einu eru kannski komnar tröppur upp að inngangi þar sem átti að vera beint flæði inn.“

Íbúðar­húsið í Voga­hverfinu sem um ræðir er í Kuggavogi. Nýbyggingar hafa undan­farin misseri risið þar á ógnar­hraða.

„Því miður eru menn oft ekki að vanda sig í þessu ferli; þeir sem bera ábyrgð passa ekki nægilega vel upp á þetta,“ segir Stefán.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið