Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Vilja fá Sálina aftur á svið: „Það er kominn tími til þess að Sálin setji vélarnar í gang!“

Aðdáendur Sálarinnar þrýsta nú á að hljóm­sveitin snúi aftur og haldi risa­tónleika til að fagna 35 ára afmæli sveitarinnar.

Sálin hans Jóns míns er ein allra vinsælasta hljómsveit Íslands­sögunnar en lög þeirra hafa lifað með þjóðinni í áratugi. Dugir að nefna lög eins og Sódóma, Þú full­komnar mig, Vængja­laus, Hvar er draumurinn? og Kanínan en listinn er þvert á móti tæmandi. Böll hljóm­sveitarinnar þóttu einnig stórkostleg og ófáir Íslendingar sem eiga frábærar minningar frá þeim.

Þrátt fyrir gífurlegar vinsældir hætti hljóm­sveitin árið 2018 en hún hélt kveðju­tónleika í Hörpu það ár. En nú eru blikur á lofti.

Nú þegar 35 ár eru frá stofnun Sálarinnar sálugu, hafa aðdáendur Stefáns Hilmars­sonar og félaga hans tekið málin í sínar hendur og stofnað Facebook-hóp sem hefur það markmið að fá hljóm­sveitina til að snúa úr hinum helga steini til að halda veglega afmælis­tónleika. Ber hópurinn einfald­lega nafnið Sálin 35 ára.

Hátt í 500 manns eru í hópnum sem fer stækkandi með hverri mínútunni.

„Það er kominn tími til þess að Sálin setji vélarnar í gang ! Þann 10 mars á næsta ári er bandið 35 ára og það þarf að halda uppá. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið og við skorum hér með á þá að efna til veglegrar afmælis­veislu/tónleika þar sem við getum öll komið saman og haft gaman.“

Þjóð­þekktir einstaklingar eru meðal aðdáenda í hópnum en útvarps­maðurinn handlagni, Gulli Helga er einn af þeim en hann skrifaði færslu þar sem hann hvetur Sálina áfram: „Einn tveir!!…,“

Annar útvarspmaður frá Bylgjunni, Ívar Guðmundsson skrifaði einnig færslu í hópnum: „Sem einn af stórum hópi aðdáenda þá segi ég, oft hefur verið minna tilefni :).“

Og nú er bara að bíða og sjá hvernig strákarnir í Sálinni hans Jóns míns taki í endurkomu hugmyndina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið