Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Ferðalangar gætu upplifað raskanir og ringulreið fram á haust: „Kemur illa niður á ferðaplönum“

Ritstjóri Túrista varar við því að það ófremdar­ástand sem ríkt hefur á flug­völlum og í flug­samgöngum undan­farið muni líklega halda áfram fram á haustið. Hann mælir með því að ferðast eingöngu með hand­farangur og að forðast tengiflug. Þetta kom fram í máli hans í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Talsvert hefur verið fjallað um tíðar tafir á flugum, týndan farangur, og öngþveiti og óreiðu á flug­völlum heimsins undan­farið. Fregnirnar berast frá Bretlandi og fleiri löndum í Evrópu, sem og Banda­ríkjunum. Viðskipta­vinir hinna ýmsu flug­félaga hafa lent í því að ferða­áætlanir þeirra komist í uppnám vegna þessa og eru íslensku flug­félögin engin undan­tekning. Greint hefur verið frá því að illa gangi að manna stöður hjá flug­félögum og á flug­völlunum eftir heims­faraldur Covid-19. Viðsnúningur í ferða­þjónustu var hraður eftir að mörg lönd felldu úr gildi takmarkanir vegna faraldursins.

„Þetta er allavega alveg agalegt ástand og kemur illa niður á ferða­plönum mjög margra farþega bæði vestanhafs og í Evrópu. Það er svosem engin lausn í sjónmáli akkúrat núna yfir hásumarið þegar flestir eru á ferðinni,“ segir Kristján Sigurjónsson, eigandi Túrista, í Bítinu. Hann segir ástandið geta varað fram á haust, ef marka megi til að mynda yfir­lýsingu forstjóra Lufthansa, sem er stærsta flug­félaga­samsteypa í Evrópu.

„Hann gerir ekkert ráð fyrir að þetta skáni nokkuð fyrr en að líður á haustið þegar færri verða á ferðinni. Þá má búast við því að flug­farþegar verði áfram að sætta sig við breytingar á flug­áætlunum og töfum,“ segir Kristján. Hann bendir farþegum á að sækja um bætur frá flug­félögunum ef flugi er seinkað um langan tíma eða aflýst.

Mannekla er þó ekki eina vandamál flug­félaganna. Verkföll hafa farið af stað hjá flug­félögum og á flug­völlum víða um Evrópu og röskun hefur orðið á aðfanga­keðju.

Kristján mælir með því við ferða­langa að forðast tengiflug og einfalda ferða­lagið eins og kostur er.

„Það hefur verið töluvert um að farangur týnist. Gott er að ferðast bara með hand­farangur og helst að fljúga bara beint og reyna að gera ferða­lögin eins einföld og hægt er.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá