Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður á Vísi skrifar að „Guðbergur Bergsson rithöfundur var níræður um helgina. Svo umdeildur er Guðbergur að ekki einu sinni getur ríkt sæmilegur friður um þau tímamót hans. Á Facebook fór allt í hnút í gær þar sem brigslyrðin gengu á víxl.“

Íslenskufræðingurinn Mörður Árnason, ákvað að senda Jakobi Bjarnari, bæði bláa og rauða pillu:
„Af hverju gerði Jakob Bjarnar ekki neitt ? — blaðamaður með meira áhrifavald en við almenningur í gjánni ? Undarleg skrif.“
Þeir sem þekkja Jakob Bjarnar vita að hann lætur engan vaða yfir sig, í orði, á borði né á neti; bruddi báðar pillurnar og skyrpti þeim síðan út úr sér; svaraði Merði eins og búast mátti við; af fullri hörku:
„Gerði ekki neitt? Ekki að það skipti neinu andsk máli en ég var reyndar að detta í hús eftir vetrarfrí. Hvaða kjaftbrúk er þetta á stjórnarmanni Ríkisútvarpsins sem er að fá 5 milljarða á ári auk þess að vera beitt skefjalaust á takmarkaðan auglýsingamarkað meðal annars á þeim forsendum að stofnunin fjalli um menningu? Af hverju átti Vísir að „gera eitthvað“?“
Svo mörg voru þau orð.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir