Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Karl Ágúst minnist látins vinar: „Ég kveð þig döprum augum, en með hlýju í hjarta“

Karl Ágúst Úlfsson
Karl Ágúst Úlfsson Mynd: Þjóðleikhúsið

Leikarinn ástsæli, Karl Ágúst Úlfsson skrifaði í kvöld afar fallega færslu á Facebook til minningar um kæran vin hans, Guðmund Ásmundsson sem lést nýverið.

Eins og við var að búast af Karli Ágústi er færslan afar vel skrifuð og falleg. Gaf hann Mannlífi góðfúslegt leyfi til að birta færsluna í heild sinni:

„Elsku Gummi. Nú eru nákvæmlega þrjátíu ár frá því við hittumst fyrst. Og í dag varð ég að kveðja þig í síðasta sinn. Samt ekki minninguna um þig – hana kveð ég aldrei.

Við tókumst í hendur í fyrsta sinn í vínbúðinni í Aþenu, Ohio. Ég og fjöl­skylda mín vorum nýja fólkið í bænum, komin til að hefja nám bæði við háskólann og grunn­skólann, en þar voru nokkrir Íslendingar fyrir. Við gengum inn í þennan hóp og nutum góðs af reynslunni og þekkingunni sem þar hafði safnast upp, gátum alltaf leitað ráða og leið­beininga í þessu nýja umhverfi sem við þekktum varla nema af afspurn. Þar reyndist þú aldeilis haukur í horni – og við urðum vinir.

Reyndar var varla hægt að umgangast þig, Gummi, án þess að tengjast þér vináttu­böndum. Þú varst skemmtilegur, glaðvær, glöggur, greið­vikinn – og traustur. Já, alltaf varstu traustur og viljugur að leysa allan vanda sem upp gat komið.Það var ómetanlegt að kynnast þessum hópi íslenskra námsmanna og fjöl­skyldum þeirra. Minningarnar um allt það samkrull vekja ennþá bros, jafnvel skelli­hlátra og stöku tár. Og alltaf ertu þú framarlega á öllum þeim myndum sem hugurinn fram­kallar, þú og Helga og Hildur, sem þá var bara pínulítið spons og uppáhald allra. Þessar minningar herja á mig í dag, hvort sem um er að ræða grill­veislur, spila­kvöld, samkvæmis­leiki eða sögur – já, enda­lausar sögur, skemmtilegar og jafnvel grát­broslegar af skakka­föllum nákominna ættingja á leið í heim­sóknir á þennan afskekkta og lítt þekkta heimabæ okkar á miðjum kornakri í miðjum Banda­ríkjum Norður-Ameríku.Ó, já, það var mikið hlegið. Og nú sit ég hér og er ekki hlátur í hug. Það er sárt að þurfa að kveðja alltof snemma. Líklega eru það einungis góðar minningar sem geta hjálpað manni á slíkum stundum. Hér er ein, elsku Gummi, ein sem ég held mikið uppá og skrifa nú mér til hjálpar.Við héldum stundum spila­kvöld, þar sem við bjuggum hlið við hlið í Myllu­stræti. Þessi minning er um póker­kvöld heima hjá mér, þar sem Íslendinga­klíkan kom saman til að spila. Þegar við höfðum spilað nokkra hringi kom í ljós að bjórbigðir heimilisins voru á þrotum, svo það varð úr að tveir af spila­mönnum voru sendir út í hverfis­búðina til að afla fanga. Þegar þeir voru farnir stakk Gummi uppá hrekk, sem við hin féllum fyrir og hrintum í framkvæmd. Þegar sendi­mennirnir komu aftur var gefið í nýtt spil. Þá vildi svo makalaust til að þeir fengu báðir fullt hús upp í hendurnar. Þessir tveir voru alveg örugglega mestu keppnis­mennirnir í hópnum og þó að allir rembdust við að halda í sitt pókerfés tókst hrekk­lausum bjór­burðar­mönnum ekki með góðu móti að leyna því að nú væri eitthvað stórt í aðsigi. Ástæðan fyrir þessari ótrúlegu heppni félaga okkar var vitaskuld sú að Gummi hafði raðað rétt í spila­stokkinn á meðan þeir voru fjar­verandi, svo þeir gátu ekki annað en fengið fullt hús. Aðrir spilarar tóku að pakka hver á fætur öðrum, enda allir með hunda á hendi, og að lokum voru þeir sem höfðu húsfylli einir eftir. Og hvorugur vildi gefa sig, svo potturinn hækkaði og hækkaði, það var dobblað og dobblað og dobblað enn og aftur. Við sem sátum hjá þurftum að bíta okkur í kinnarnar, nudda á okkur auga­brúnir, jafnvel reita á okkur hnakka­hárin til að springa ekki úr hlátri og þegar potturinn var sprunginn og hrekkurinn afhjúpaður varð hláturinn í íbúðinni svo hávær að hann rúmaðist varla innan fjögurra veggja og sumir urðu að ganga út á tún og emja þar.Elsku Gummi. Ég þakka þér fyrir vináttuna, fyrir þetta þétta handtak í vínbúðinni um árið, fyrir gleðina og fyrir þær góðu og skemmtilegu minningar sem ég á um þig og samskipti okkar. Ég kveð þig döprum augum, en með hlýju í hjarta og ljós í höfðinu sem allt það fallega sem ég man um þig hefur gefið mér. Farðu vel, bróðir og vinur.

Elsku Helga, Hildur og Ásgrímur – og þið hin sem þekktuð Gumma og elskuðuð – hjartans samúð og kærleikur til ykkar allra.“

Mannlíf sendir samúðar­kveðjur til Karls Ágústar og aðstand­enda Guðmundar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning