Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Heyannir á Árbæjarsafni

Sýnt verður hvernig hey var slegið með ljá, rakað með hrífum og unnið með handafli

Fjölmargir af helstu harmonikkuleikurum þjóðarinnar munu koma fram
Fjöl­margir af helstu harm­on­ikku­leik­urum þjóð­ar­innar munu koma fram Mynd: Borgarsögusafn Reykjavíkur

Hin árlega Harmoniku­hátíð Reykja­víkur verður haldin sunnu­daginn 12. júlí næst­komandi á Árbæjar­safni. Dagskráin, sem samanstendur af lifandi harmonikku­tónlist og lifandi kynningu á sögulegum heyönnum sem býður gestum upp á einstaka innsýn í íslenska menningar­sögu.

Hátíðin er nú haldin í 28. sinn í samstarfi við Árbæjar­safn. Viðburðurinn er að þessu sinni tileinkaður minningu tveggja merkra manna í sögu hátíðarinnar: Karls Jónatans­sonar, stofnanda hátíðarinnar og frumkvöðuls harmonikku­tónlistar á Íslandi, og Guðrúnar Guðjóns­dóttur, drif­fjaðrar Vita­torgs­bandsins, sem lést þann 31. maí síðastliðinn. Guðrún hafði verið órjúfanlegur hluti af starfi hátíðarinnar allt frá árinu 1999.

Tækifæri til að taka þátt í hefðbundnum heyvinnubrögðum

Fjölmargir af helstu harmonikku­leikurum þjóðarinnar munu koma fram á tónleikum dagsins. Meðal þeirra eru hljóm­sveitir frá Félagi harmoniku­unnenda Reykja­víkur og Harmoniku­félagi Reykja­víkur, fulltrúar frá Félagi harmoniku­unnenda við Eyjafjörð og á Suðurnesjum, Vita­torgsbandið, auk þeirra Páls Elíassonar og Odds Fjeldsted.

Samhliða tónlistar­flutningnum mun gefast tækifæri til að fylgjast með og taka þátt í hefð­bundnum heyvinnu­brögðum eins og þau gerðust áður en vélvæðing hófst í íslenskum land­búnaði. Sýnt verður hvernig hey var slegið með ljá, rakað með hrífum og unnið með handafli, að því gefnu að veður­skilyrði leyfi. Ef veður hamlar heyvinnu munu heyannir falla niður en tónlistar­dagskráin mun fara fram samkvæmt áætlun.

Formleg dagskrá fer fram á milli klukkan 13:00 og 16:00, en safnið sjálft er opið á milli klukkan 10:00 og 17:00. Kaffihús safnsins í Dillonshúsi verður jafnframt opið gestum. Ókeypis aðgangur er fyrir börn, öryrkja og handhafa Menningar­korts Reykjavíku

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt