Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Flaug til Tenerife en var handtekinn við lendingu

Framdi glæp í háloftunum

Tenerife North-flugvöllurinn
Tenerife North-flug­völl­ur­inn Mynd: Mike Peel (www.mikepeel.net)/Wikipedia

Farþegi var hand­tekinn á Tenerife North-flug­vellinum á Tenerife í síðustu viku eftir að hafa reynt að greiða fyrir vörur um borð í flugvél með fölsuðum 20 evra seðlum.

Maðurinn, sem er fertugur, var á leið frá Madríd til Tenerife þegar áhöfn flug­vélarinnar varð tortryggin vegna seðla sem hann fram­vísaði við kaup um borð. Lögreglunni var gert viðvart og biðu lögreglu­menn eftir manninum þegar vélin lenti á Tenerife.

Eftir að aðrir farþegar höfðu yfirgefið vélina höfðu lögreglu­menn afskipti af manninum. Við leit í eigum hans fundust nokkrir 20 evra seðlar sem grunur lék á að væru falsaðir.

Að sögn lögreglu­yfirvalda skorti seðlana ýmis auðkennis- og öryggis­atriði sem finna má á ófölsuðum evru­seðlum. Þá voru nokkrir þeirra með sama raðnúmer, sem jók enn frekar grun­semdir lögreglu. Frekari rannsókn staðfesti að um falsaða seðla væri að ræða og var maðurinn hand­tekinn vegna gruns um peninga­fölsun.

Málið tók síðan aðra stefnu þegar lögregla skoðaði skilríki mannsins. Grunur vaknaði um að persónu­skilríki frá heima­landi hans kynnu einnig að vera fölsuð en ekki hefur gefið upp hvers lenskur maðurinn er.

Skjölin hafa verið send sérfræðingum til rann­sóknar. Reynist þau fölsuð gæti maðurinn einnig átt yfir höfði sér ákæru vegna fölsunar opinberra skjala.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Sveitarfélagið taldi eigendur kattarins ekki eiga aðild að máli um eftirlit með hundahaldinu og synjaði þeim um aðgang að gögnum.
Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi