Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Sopranos leikarinn Vincent Pastore látinn

„Fyrir umheiminn verður hann ávallt hinn ógleymanlegi „Big Pussy“, en fyrir okkur sem þekktum hann var hann svo miklu meira.“

Vincent Pastore
Vincent Pastore Pastore var átt­ræður er hann lést Mynd: THEO WARGO / GETTY IMAGES VIA AFP

Bandaríski leikarinn Vincent Pastore, sem var þekktastur fyrir hlutverk sitt sem mafíósinn Salvatore „Big Pussy“ Bonpensiero í HBO-þáttunum The Sopranos, er látinn, 80 ára að aldri.

Umboðs­menn hans, Robert Attermann og Bob McGowan, staðfestu andlátið við E! News. Ekki liggur enn fyrir dánar­orsök en Pastore fannst látinn á heimili sínu í Bronx í New York. Talið er að hann hafi látist 31. júlí eða 1. ágúst.

„Ég hafði þann heiður að vera umboðs­maður Vinny í meira en 30 ár, löngu áður en The Sopranos gerði hann að lands­þekktu nafni,“ sagði Attermann í yfir­lýsingu.

„Fyrir umheiminn verður hann ávallt hinn ógleymanlegi „Big Pussy“, en fyrir okkur sem þekktum hann var hann svo miklu meira.“

Attermann lýsti Pastore sem einum hlýjasta og örlátasta manni sem hann hefði kynnst og sagði hann ávallt hafa tekið sér tíma til að hitta aðdáendur, skrifa eiginhandar­áritanir og stilla sér upp fyrir myndir.

Bob McGowan sagði tíðindin vera „áfall“ og kvaðst afar sorg­mæddur vegna andlátsins.

Á nærri fjögurra áratuga leikferli varð Pastore þekktur fyrir hlutverk ítalsk-amerískra mafíósa í kvik­myndum og sjónvarpi. Hann lék meðal annars í myndunum Goodfellas (1990), Carlito's Way (1993) og Gotti (1996).

Það var þó árið 1999 sem hann sló í gegn í hlutverki „Big Pussy“ í The Sopranos. Persóna hans var náinn samstarfs­maður mafíu­foringjans Tony Soprano, sem James Gandolfini lék, en síðar kom í ljós að hann hafði orðið uppljóstrari fyrir lögregluna. Örlög hans í lokaþætti annarrar þáttaraðar árið 2000 eru talin ein eftir­minnilegasta sena í sögu þáttanna.

Pastore lætur eftir sig dótturina Renee Pastore, sem hann átti með fyrr­verandi eiginkonu sinni, Nancy Berke.

Attermann sagði að lokum að Pastore hefði elskað leik­listina og lagt sig fram um að styðja unga leikara.

„Hann skilur eftir sig arfleifð sem nær langt út fyrir eftir­minnileg hlutverk hans. Hans verður sárt saknað og hans verður ávallt minnst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs