Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Martröð í Miðhúsaskógi

Einn af bústöðum VR.
Einn af bústöðum VR. Mynd: YouTube-skjáskot

Árið 2011 ákvað ég og þáverandi unnusta mín að fara með eins árs gamla dóttur okkar í sumar­bústaðar­ferð í Miðhúsa­skóg. Það var vetur og snjóþungt, en þar sem ég er frá Fellabæ fyrir austan, þar sem snjóar stundum í júní, hafði það engin áhrif á helgar­plönin. En þetta voru helgar­plön, sem áttu eftir að vera okkur minnis­stæð langa, langa lengi.

Við komum nokkuð seint á föstudags­kvöldi að bústaðnum, en þegar ég ætlaði að keyra niður að bíla­stæðinu sem fylgdi honum var það ekki hægt því þar var haugur af snjó, jafnvel of stór haugur fyrir mitt austfirska egó. Þá var ekki annað í stöðunni en að bakka til baka upp brekkuna og leggja fyrir framan bústaðinn. En það gekk ekki betur en svo en að ég festi bílinn á einhverju furðulegu. Ég fór út og sá þá mér til skelfingar að grjót­hnullungur lá undir bílnum og á honum sat bíllinn fastur. Þá hafði víst einhverjum snillingnum dottið í hug um sumar að raða stein­hnullungum með fram veginum, sem skraut en datt ekki í hug að um veturinn myndi snjóa yfir grjótið og það virka sem gildra fyrir saklausa ökumenn. Ég fór út úr bílnum og valdi nokkur vel valin blótsyrði en fór svo niður á hnén og ákvað að nýta fornleifa­fræðinám mitt loksins og byrja að grafa í snjónum til að reyna að losa bílinn. Það gerði ég með berum höndum, af því að ég er það mikið karlmenni. Já og af því að ég átti ekki skóflu í bílnum. Allt kom fyrir ekki og ég varð að játa mig sigraðan í bili. Mitt austfirska egó beið hnekki, ég viðurkenni það. Við fórum inn með farangurinn og dóttur okkar og komum okkur fyrir. Ég sótti barna­rúmið sem fylgdi þessum VR-bústað enda kominn svefntími hjá dótturinni, en viti menn, auðvitað gat svo auðvelt verkefni ekki verið án vandkvæða. Það reyndist brotið og því algerlega ónothæft. Og hvað gera bændur þá? Ég sá að það voru kveikt ljós í næsta bústað og ákvað því að banka upp á og athuga hvort gestirnir væru með barnarúm sem þeir mættu missa um helgina. Til dyra kom formaður VR, sem mikið hafði verið í fjöl­miðlum á þessu ári og með honum var kærasta hans sem einnig var í sömu fréttum. Ég hafði málað í huga mér ljóta mynd af manninum, en hann gat ekki verið almennilegri. Rétti mér barna­rúmið með bros á vör og ég skammaðist mín niður í rassgat yfir að hafa málað þessa ljótu mynd af honum, hann var sjálfsagt hinn ágætasti náungi. Þegar ég var kominn aftur með barna­rúmið uppgötvaði ég mér til skelfingar að ég var hvorki með símann á mér né korta­veskið, en ég hafði geymt báða hluti í brjóst­vasanum á úlpu minni. Eftir að hafa leitað eins og brjál­æðingur um allan bústað og inni í bílnum, kviknaði pera í kollinum, loksins. Ég hlaut að hafa misst korta­veskið og símann út úr vasanum þegar ég reyndi að grafa upp bílinn, (berhentur, nota bene). Ég ákvað þá að beita fornleifa­fræði­kunnáttu minni aftur og eftir að hafa grafið nokkra sentí­metra niður í snjóinn fann ég bæði korta­veski og síma og eftir að hafa gert C-14 aldurs­greiningu, fékk ég staðfest að um mitt dót væri að ræða.

Jæja. Þarna var dóttir mín sofnuð og við hjóna­leysin gerðum okkur tilbúin að hafa það kósí fyrir framan sjón­varpið. Við höfðum keypt helgar­áskrift að Stöð 2 og ætluðum að njóta okkar í Stöð 2 og „chill“ eins og unga fólkið kallaði þetta á þessu tíma en þetta var áður en Netflix gerði innrás sína inn á íslensk heimili. Maður hefði haldið að eftir að hafa greitt fyrir heila helgi af sjónvarps­efni frá Stöð 2, þá gæti maður horft á sjónvarps­efni frá stöðinni. Ekki við. Það bara virkaði engan veginn, sama á hvaða takka við ýttum eða börðum á sjón­varpið. Og annaðhvort var lokað í síma­verinu um helgar á þessum árum eða það svaraði bara enginn. Jæja, við höfðum þó tekið með okkur nokkrar DVD-myndir og þarna var að sjá DVD-tæki svo við áttum að vera góð. Auðvitað vorum við ekki góð, því DVD-spilarinn var ekki í sambandi og helvítis sjónvarpsskenkurinn, sem var risastór og náði yfir sjón­varpið líka, var rígnegldur við vegginn og engin leið að stinga helvítis tækinu í samband. Unnusta mín fyrr­verandi hafði tekið ofurþunnu fartölvuna sína með, sem var það þunn að ekki var einu sinni geisla­spilari í henni. En hún var með eina kvikmynd vistaða í henni. Og hvaða mynd var það? Nú, auðvitað Willy Wonka and the Chocolate Factory með snillingnum Gene Wilder í aðal­hlutverki. Stórkostleg mynd, en svo út úr kú súr(realísk) að maður þyrfti helst að vera helskakkur til að ná henni alveg.

Þegar þarna var komið við sögu var unnustan þáverandi á því að allt sem hefði gengið úrskeiðis, væri fyrirboði einhvers miklu stærra og verra sem ætti eftir að koma fyrir okkur í ferðinni. Bull og vitleysa hélt ég, en annað kom á daginn, þannig séð. Daginn eftir kom über-fúli húsvörðurinn í Miðhúsa­skógi til að hjálpa mér að ná bílnum af fáránlega grjót­skrautinu. Hann sagði eitthvað í ætt við „Hvernig tókst þér að festa bílinn hérna?“ og með augunum bætti hann við „naut­heimski Reyk­víkingur.“ Eftir að ég og Frans fúli náðum að losa bílinn með hjálp trjá­planka og austfirskum ökutöktum, þakkaði ég manninum fyrir hjálpina og hélt aftur inn í bústað.

Laugar­dagurinn gekk án skakka­falla, en þegar við vorum að gera okkur klár í að fara aftur heim, kom þetta sem unnustan hafði fundið á sér. Dóttir okkar var komin inn í bílinn, sem ég hafði í gangi til að hita hann upp. Mamma hennar var að skúra gólfið og ég var að taka allan farangurinn og setja hann í bílinn. Þegar ég hafði sett síðustu töskuna í skottið, sem var litla íþrótta­taska unnustunnar, gerðist nokkuð sem átti eftir að verða hund­leiðinlegt vandamál í hvert sinn sem kólnaði í veðri. Bíllinn læstist. Með lykilinn í start­aranum. Enda var bíllinn í gangi, munið þið. Og litla dóttir mín í bílnum. Ég keypti bílinn sumarið áður óafvitandi að í honum leyndist sá galli að á veturna átti hann það til að læsa sér í tíma og ótíma. Mér brá nú ekkert svo því unnustan fyrr­verandi var alltaf, og þá meina ég alltaf, með aukalykil að bílnum. Þannig að ég gekk í hægðum mínum til hennar þar sem hún skúraði af miklum móð. Ég bað hana vinsamlegast um lyklana því bíllinn hefði læst sér að gamni sínu. Viti menn, hún hafði sett lyklana í litlu íþrótta­töskuna sem ég var nýbúinn að setja í skottið. Við foreldrarnir hlupum út en reyndum að leika okkur svöl þegar við gengum að rúðunni þar sem dóttir okkar sat í barna­bílstólnum í bílbeltinu fyrir innan (auðvitað). „Pabbi, koma!“ sagði sú stutta. „Já, ég kem eftir smástund,“ svaraði ég sveittur en rólegur á að líta. „Valería taka í pinnann og toga upp!“ sagði ég í veikri von um að hún fattaði hvað í ósköpunum ég væri að meina, með tilheyrandi látbragði. Hún fattaði auðvitað ekkert hvað pabbi hennar var að reyna að segja og furðaði sig bara á því að við værum ekki að koma í bílinn. Við heyrðum aftur í Frans fúla og báðum hann um hjálp. Andvarpið sagði allt. „Hvað núna, nefaparnir ykkar?“ Hann kom með lögreglu­græjur, eða glæpa­græjur, fer eftir því hvernig á það er litið, svona græju til að opna bíla án lykla. Ég aðstoðaði hann, en við þurftum að spenna upp hurðina farþegamegin til að koma tólinu meðfram glugganum innan­verðum og beið hurðin þess aldrei bætur, var alltaf svolítið belgd og minna einangruð, en við komumst þó í bílinn og gátum haldið heim á leið. Við ákváðum að minnast á það við Frans fúla að Stöð 2 hefði ekki virkað og þá sagði hann af mikilli vandlætingu „Af hverju hringduð þið ekki í mig, ég sé um Stöð 2 hér á svæðinu.“ Mér datt í hug tilvitnun í Adam Sandler, en þorði ekki fyrir mitt litla líf að segja hana upphátt: „Þessar upplýsingar hefðu komið sér vel Í FYRRADAG!“.

Við komum heim á sunnudags­eftir­miðdegi, úttauguð með særð egó eftir helgina, en eftir á hyggja var þetta skemmtileg ferð, þannig séð. Og alveg efni í fína ferða­hryllings­sögu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt