Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Flóttafólk frá Úkraínu kynnt fyrir Austurlandi: „Vonandi víkkaði það út þægindarammann!“

Hópurinn lukkulegi
Hópurinn lukku­legi

Síðustu mánuði hefur Austurbrú á Egils­stöðum haldið úti námsleið sem heitir Land­neminn. Náms­leiðin er fyrir flótta­fólk frá Úkraínu en náminu lauk um daginn með ferðalagi nemana um Austur­land.

Að sögn Austur­fréttar var kennari náms­leiðarinnar hin úkraínska Iryna Boiko og fór því kennslan fram á úkraínsku. Þar var kennd samfélags­fræði sem sniðin var að flótta­fólki og innflytjendum. Tilgangur Landnemanst var sá að veita nemendunum upplýsingar og innsýn í mikilvæga þætta er snúa að atvinnu og búsetu á Íslandi. Þá var í náms­leiðinni veittar gagnlegar upplýsingar um íslenskt samfélag, þjónustu og stofnanir sem og um ýmsa menningar­tengda þætti og daglegt líf hér á landi.

Ríflega tuttugu manns tók þátt í námskeiðinu en því lauk um síðastliðna helgi með ferðalagi um Austur­land en ferða­lagið var skipulagt af Austurbrú, Múlaþingi og Rótarýklúbbi Héraðsbúa. Var öllu flótta­fólki frá Úkraínu boðið í ferðalagi, ekki aðeins þeir sem tóku þátt í námskeiðinu. Rótarý styrkti ferða­lagið og útvegaði rútu, bílstjóra og sá um farar­stjórn.

Fyrst stoppaði hópurinn á Fáskrúðs­firði þar sem tekið var á móti honum á Franska safninu og gegnið með fólkinu um sýninguna Frakkar á Íslands­miðum. Eftir leið­sögnina um safnið var farið í Gallerí Kolfreyju þar sem starfsemin var kynnt og boðið upp á hressingu í boði sveitar­félagsins Fjarða­byggð.

Þá var haldið með hópinn á skíða­svæðið í Oddskarði í fallegu verði en þar voru hann upplýstur um praktíska hluti eins og leigu á búnaði, gjaldskrá og fleira í þeim dúr. Því næst fékk hópurinn nesti fyrir næsta áfanga en það var heima­bakað bakkelsi sem nokkrar konur er starfa í Múlanum í Neskaups­stað bökuðu. Næsta stopp var Snæfells­stofa í Fljótsdal þar sem sagt var frá starfinu þar sem og Vatna­jökuls­þjóðgarði.

Og svo byrjaði fjörið. Kvöldverður var snæddur í boði Tehússins á Egils­stöðum og í kjölfarið var þar slegið upp veislu. Séra Kristín Þórunn Tómasdóttir, prestur í Egilsstaða­prestakalli og meðlimur í Rótarýklúbbi Héraðsbúa var meðal þeirra sem tóku lagið í veislunni en hópurinn setti upp ekta úkraínskt karókí, samkvæmt frétt Austur­fréttar.

Lauk svo ferðinni með heimsókn í Vök Baths sem er við Fellabæ á Héraði en þar gat hópurinn slappað af eftir langt og skemmtilegt ferðalag um Austur­landið.

Svona ferðalag er afar mikil­vægur þáttur í náminu að sögn Hrannar Gríms­dóttir, náms- og starfs­ráðgjafa hjá Austurbrú en hún var verkefna­stjóri Land­nemans. „Við teljum að ferðalag eins og þetta geti haft mikið að segja fyrir aðlögun og vellíðan flótta­fólks,“ segir hún. „Þarna fékk fólk tækifæri til að kynnast betur menningu og náttúru fjórðungsins, þau hittu fyrir margt fólk og fengu alls staðar hlýjar og góðar móttökur. Þau fengu upplýsingar frá farar­stjórum um þjónustu, menningu og sögu samfélagsins og tækifæri til að spyrja. Einnig fengu þeir Íslendingar sem tóku þátt í ferðinni, á einn eða annan hátt, tækifæri til að hitta fólkið og kynnast því. Það kynntist betur innbyrðis, stækkaði félags­netið og vonandi víkkaði það út þægindarammann!“ Sagði Hrönn í samtali við Austur­frétt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Úrskurðarnefnd staðfesti synjun ráðuneytisins þar sem afhending tölvupósts um lokaðan fund gæti grafið undan trausti milli ríkja.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp