Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Er ríkið að eyða 140 milljónum í rugl? „Menn keyra um fretandi með byssur og standa í þessu rugli“

Þórdís Gísla­dóttir, rithöfundur og þýðandi, segist á Twitter hafa fundið auðvelda leið fyrir sveita­félög og ríkið til að spara 140 milljónir á ári. Það megi gera með því að hætta refa­veiðum. Lifa með varginum. Margir taka undir með henni, þar á meðal doktorsnemi og æðarbóndi. Á Twitter skrifar Þórdís:

„Það er verið að segja mér að 130-140 milljónum sé eytt árlega í refa­veiðar! Ríkið borgar smá og sveitar­félög (sem segjast illa stödd fjárhags­lega) borga á móti. Skatt­peningur fer í að drepa refi sem eru á stærð við ketti. Menn keyra um fretandi með byssur og standa í þessu rugli.“

Albína Hulda Páls­dóttir, doktorsnemi í dýra­fornleifa­fræði, segir að þetta hafi verið rætt í akademíunni. „Jebb og okkar vísinda­fólk sem rannsakað hefur refinn hefur í áratugi bent á að þetta skilar nákvæmlega engu og í sumum tilfellum geta aðferðirnar sem notaðar eru (leggja út fæði á veturna) jafnvel stækkað stofninn stað­bundið,“ skrifar hún.

Steinunn Ólína leikkona er þó ekki á sama máli og Þórdís. Hún skrifar: „Ef þú sæir þá í varpi fugla hér á Ströndum sætirðu með haglarann á pallinum.“

Hafrún Gunnars­dóttir líffræðingur svarar henni og segir: „Fuglalíf á Íslandi er vel aðlagað að afráni refsins. Auðvitað geta þeir haldið stofni undir burðar­þoli lands en það er samt sem áður alveg jafn náttúruleg stjórnun og stjórnun sem ræðst eingöngu af fæðu­framboði. Stofnsveiflur milli ára verða líka yfirleitt mun minni með afráni.“

Hún segir einnig: „Já mér finnst ansi þreytandi þegar refa­skyttur titla sig sem einhverskonar verndara mófuglana. Benda svo á hin og þessi svæði sem eru orðin mófugla­laus sökum afráns þótt engin gögn liggi fyrir. Tegunda­fjöl­breytileiki fugla á Horn­ströndum virðist ekki hafa rýrnað eftir friðun.“

Helstu rök fyrir refa­veiðum eru, líkt og Steinunn Ólína kom inn á, að þetta sé gert til að vernda varp en einnig svo æðarbóndar verði ekki fyrir stórskaða af völdum vargsins. Árni Rúnar Örvarsson segist ekki hlynntur þessu, þó hann sé æðarbóndi.

„Ég er sjálfur æðarbóndi og er algjör­lega á móti því að skatt­peningar fari í refa­veiðar. Við greiðum refa­skyttu sjálf til að skjóta. Þannig er veiðinni betur sinnt og þeir sem hafa hagsmuni af veiðinni eru þeir sem greiða fyrir hana.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá