Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Ráð fyrir konur – „Þeir kunna illa við gróf og fyrirferðarmikil föt, sem hylja allt vaxtarlag“

Marilyn Monroe
Marilyn Monroe

Það eru aðeins nokkrir áratugir frá því að bók eftir Joan Bennet var þýdd yfir á íslensku. Bókin ber nafnið: Aðlaðandi er konan ánægð en þar má finna hinar ýmsu leið­beiningar um það hvernig kona skuli halda karlmanni ánægðum. Sem betur fer eru tímarnir breyttir og þykir eflaust mörgum fyndið að lesa ráðin sem má finna í bókinni, þau eru einmitt baksýnis­spegill dagsins.

Það var algjört lykil­atriði að vita hversu mikið karlmenn þola ekki kaldhæðni. „Biðjið, skrifið ekki og forðizt kaldhæðni. Karlmenn hata og hafa alltaf hatað hæðni allt frá því, er þeir voru á skóla­bekknum; þeir hötuðu hæðni kennarans, hæðni konunnar geta þeir aldrei fyrir­gefið.“

„Svíkið ekki gefið loforð um stefnumót, þó að yður bjóðist annað skemmtilegra.“ Þá er ítrekað mikilvægi þess að kona skuli aldrei leiðrétta karlmann. Að setja út á útlit hans eða framkomu – það var líka bannað.

Útlit konunnar þurfti hinsvegar að vera „kvenlegt“ og hárið líta út fyrir að vera mjúkt og hreint. „Þeim líkar vel varalitur, en mislíkar að hann sé eins og klessu­verk. Þeir kunna vel við venjulega liti, blátt, ljósrautt, marínu­blátt, rautt, en þeir kunna illa við áberandi lita­samsetningar.“

„Þeir kunna illa við gróf og fyrirferðar­mikil föt, sem hylja allt vaxtarlag. Þeir vilja fyrir hvern mun losna við að sjá í gegn það sem innanklæða er, eins og mjaðma­belti eða lífstykki,“ segir í kaflanum um útlit. Konan skal vera glaðleg á svipinn þar sem karl­mönnum líkar vel við glaðlegar konur, með jú, fallega leggi.

„Drekkið ekki áfengi svo þér verðið ekki kennd eða ástleitin og sýnið ekki manninum nein blíðu­atlot, þó sakleysisleg séu. Það kann að misskiljast og er rangt gagnvart manninum.“ Bókin er eflaust gott dæmi um það sem eldist ekki vel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið