Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Borgaði 30 dali fyrir málverk sem reyndist gullnáma

Var í leit að vínyl­plötum

Bandarískir dalir
Banda­rískir dalir Mynd: Linus Nilsson/Unsplash

Málverk eftir hina þekktu Chicago-listakonu Gertrude Abercrombie, sem hafði verið týnt í áratugi, hefur selst á uppboði fyrir 1,35 milljónir Bandaríkja­dala. Málverkið hafði skömmu áður verið keypt úr dánarbúi í Michigan fyrir aðeins 30 dali.

Verkið nefnist Alderman Merriam's Shells og var málað árið 1951. Á því má sjá safn skelja sem tilheyrði Robert Merriam, þáverandi borgar­fulltrúa í Chicago. Merriam sat í borgar­stjórn frá 1947 til 1955.

Málverkið var árið 1952 gefið lækninum John T. Reynolds í Kalamazoo í Michigan sem greiðsla fyrir læknis­þjónustu. Verkið var sýnt í New York, Chicago, Milwaukee og Evanston á árunum 1952 og 1953 en eftir sýningu í Chicago árið 1953 hvarf það sjónum almennings.

Það kom aftur í leitirnar á þessu ári þegar maður í leit að vínyl­plötum á markaði rak augun í málverkið og kannaðist við nafn Abercrombie á bakhlið þess. Hann keypti verkið fyrir 30 dali.

Uppboðs­húsið Freeman's Auctions áætlaði verðmæti þess upphaf­lega á bilinu 15 þúsund til 250 þúsund dali. Þegar hamarinn féll hafði verkið hins vegar verið slegið á 1,35 milljónir dala.

Samkvæmt uppboðs­húsinu er það hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir verk Abercrombie á uppboði. Lista­konan lést árið 1977.

Mál­verkið dýra
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs