Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Sólveig tekur Moggann til bæna: „Væri nú gaman ef að einhver með heila skrifaði grein“

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. Mynd/skjáskot RÚV
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd/skjá­skot RÚV

Sólveig Anna Jóns­dóttir, formaður Eflingar, lætur Morgun­blaðið og blaðamann þess, Stefán Einar Stef­ánsson, heyra það í pistli sem hún birtir á Facebook. Hún vísar í frétt Morgun­blaðsins þar sem Stefán ræðir við Hörð Ægisson, blaðamann Vísis, og hneykslast þeir á framkomu verkalýðs­félaga.

„Áhyggjur Moggans eru miklar í aðdrag­anda kjara­samninga, og hafa aukist með afsögn forseta ASÍ. Við þrjú erum agalegt fólk, sérstak­lega ég og Ragnar Þór þar sem að við dirfumst að hafa þá skoðun að áherslur stærstu félaganna innan vébanda Alþýðu­sambandsins eigi að hafa vægi í stefnu­mótun og afstöðu sambandsins. Svoleiðis glæpa­hugsun hugnast ekki talsmanni  lítilmagnans, ritstjóra Morgun­blaðsins og enn síður Stefáni E. Stef­ánssyni og vini hans Herði Ægissyni en um kjara­samnings-vanga­veltur þeirra má lesa á síðum Mbl og þaðan koma myndin og fyrir­sögnin sem hér fylgir af okkur í Engisprettu­faraldrinum,“ segir Sólveig og vísar fyrr­nefnda frétt þar sem fyrir­sögnin er „Hóta verk­föllum áður en sest er við samninga­borðið“

Hún bendir svo á að vald­stéttin hafi verið fyrri til að hóta öllu illu. „Það væri nú gaman ef að einhver með heila skrifaði grein, eða jafnvel leiðara, þar sem bent væri á að bæði Þjóð­hagsráð og Seðla­bankastjóri hafa tilkynnt að vinnu­aflið skuli ekki láta sig dreyma um launa­hækkanir, svigrúmið sé einfald­lega á þrotum. Og að Seðla­bankastjóri og skýrslu-höfundar Þjóð­hagsráðs hafi komist að þessari niður­stöðu áður en að samninga­viðræður eru hafnar, jafnvel þó að það sé ekki þeirra að semja um kaup og kjör heldur sé það lögbundinn réttur vinnandi fólks. Og að með þessu sé valda­stéttin að opinbera ólýðræðislega afstöðu sína til þeirra sem vinna vinnuna, og biturð yfir því að ekki hafi tekist að smala okkur inn í Salek-réttina, eins og átti að vera búið og gert fyrir löngu svo að hægt væri að mata okkur á svigrúms-prósentum eigenda okkar í Svörtuloftum, fjármála­ráðuneytinu og Borgar­túni.

Þið megið endilega láta mig vita ef að þið rekið augun í svoleiðis texta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið