Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Frumvarp Jóns: „Nafnlaus ábending dugar lögreglu sem rökstuðningur um að grunur sé um afbrot”

Jón Gunnarsson
Jón Gunn­ars­son Mynd: Rúv-skjáskot

„Ég hlustaði á hv. þingmann í spjall­þáttum helgarinnar í sjónvarps­stöðvum og útvarps­stöðvum og síðan í frétta­tíma þar sem farið var mjög frjáls­lega með allar stað­reyndir í þessu máli. Það er alvarlegt þegar þingmenn taka til máls og hafa ekki kynnt sér málið betur en raun ber vitni eða eru vísvitandi að tala í þessa átt.” segir þingmaður Pírata, Björn Leví Gunnarsson, í aðsendri grein, sem ber yfir­skriftina Forvirkar rannsóknar­heimildir.

Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata.

Hann bætir við:

„Svona byrjar dómsmála­ráðherra svar sitt við fyrir­spurn Þórhildar Sunnu Ævars­dóttur um forvirkar rannsóknar­heimildir lögreglu og hvort það þurfi ekki að efla eftirlit með störfum lögreglu fyrst.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir. Mynd / Aldís Páls­dóttir.

Í seinna svari sínu leggur dómsmála­ráðherra Þórhildi Sunnu orð í munn og ásakar hana um dylgjur þess vegna.

Þórhildur Sunna vísar í umfjöllun ráðherra sjálfs um ósk hans til þess að auka eftirlits­heimildir lögreglu; sú ósk ráðherra er mjög vel skjalfest í viðtölum og í samráðs­gátt stjórn­valda. Orðrétt segir ráðherra:

„Lögreglan hefur varað við þessu mjög lengi. Til þess að lögreglan geti haldið uppi eðlilegu samstarfi við lögreglu­yfirvöld erlendis þarf hún víðtækari heimildir til að geta fylgst með mögulegum brota­mönnum.“

Einnig segir ráðherra að: „Heimildir lögreglu eru í dag mjög takmarkaðar, þær miðast við að grunur sé um ákveðið brot.” Í samráðs­gátt er sú útgáfa af frum­varpinu sem dómsmála­ráðherra óskar eftir umsögnum um og eru markmið frum­varpsins sögð vera: “Að skýra heimildir lögreglu til að grípa til aðgerða í þágu afbrota­varna, einkum hvað varðar afbrot eða athafnir sem raskað geta öryggi borg­aranna og ríkisins, afbrot sem tengjast skipulagðri brota­starfsemi og afbrot sem framin eru á netinu”.

Það er því mjög stór spurning hver er að snúa hverju á hvolf í þessari umræðu, hvort það sé ekki einmitt ráðherra sjálfur sem getur ekki gengist við því sem hans eigið frumvarp segir, en frum­varpið bætir ýmsu við í vopnabúr lögreglunnar:

* Aukinn vopna­burður:

„Lögreglu­stjórar geta gefið fyrirmæli um að lögreglu­menn skuli vopnast í samræmi við reglur þar um.”

* Almenn heimild til þess að njósna um netnotkun fólks:

„Í því skyni að stemma stigu við afbrotum er lögreglu heimilt að nýta, þ.m.t. til greiningar, allar þær upplýsingar sem hún býr yfir eða aflar við framkvæmd almennra löggæslu­starfa og frumkvæðis­verkefna, þar á meðal samskipti við uppljóstrara, eftirlit á almanna­færi og vöktun vefsíðna sem opnar eru almenningi.”

* Víðtæk heimild til eftirlits: „Hafi lögregla upplýsingar um að tiltekinn einstaklingur eða hópur einstaklinga hafi tengsl við skipulagða brota­starfsemi eða af þeim kunni að stafa sérgreind hætta fyrir almanna­öryggi er lögreglu heimilt að hafa eftirlit með viðkomandi.”

Frum­varpið er ekkert rosalega fyrir­ferðamikið, það eru heilar fimm greinar og fimmtán blaðsíður í heild,“ segir Björn og bætir við að „það tekur tiltölu­lega stuttan tíma að lesa þessar tillögur ráðherra. Þetta eru stað­reyndir málsins, beint úr frumvarpi ráðherra.“

Hann vill að fólk spyrji spurninga um málið:

„Spyrjum okkur þá, viljum við ekki einmitt að lögreglan hafi víðtækar heimildir til þess að fylgjast með fólki með tengsl við skipulagða brota­starfsemi? Það hljómar ekkert hættulegt fyrir almenna borgara, er það? Svarið við því er tvíþætt:

í fyrsta lagi þýðir það ekki sjálf­krafa að svarið við skipulagðri glæpa­starfsemi sé að lögreglan fari í eitthvað vopna­kapphlaup. Rann­sóknir hafa sýnt að aukinn vopna­burður lögreglu eykur ofbeldi. Þetta er vel þekkt fyrirbæri sem heitir vopna­áhrif (e. weapons effect).

Í öðru lagi er heimildin til þess að vakta vefsíður og viðhafa eftirlit með fólki á almanna­færi ekki með neinum fyrir­vörum um skipulagða glæpa­starfsemi. Hér er nauðsynlegt að hafa í huga að slíkar eftirlits­heimildir eru yfirleitt frekar notaðar gegn jaðar­settum hópum og leiðir til enn frekari jaðar­setningar. En hvað með ef almennu eftirlits­heimildirnar væru teknar úr frum­varpinu og eftir stæði bara eftirlit með fólki með tengsl við skipulagða glæpa­starfsemi, væri það þá í lagi? Nei, nefnilega ekki.“

Björn segir að „við eigum að gera ráð fyrir mistökum, þannig verðum við einmitt betri í að koma í veg fyrir þau. Þess vegna spyr Þórhildur Sunna hvort það verði ekki að koma á eftirliti með störfum lögreglunnar fyrst, áður en við ræðum mögulegar auknar vald­heimildir lögreglu.

Í umfjöllun málsins á undan­förnum dögum hefur dómsmála­ráðherra hins vegar sagt að þetta aukna eftirlit sé í frum­varpinu og endurtók það í lok svars síns á þingi með því að segja: „Við þurfum að auka eftirlit með störfum lögreglu. Það verður vel útfært í þessu frumvarpi og öll sú starfsemi verður styrkt.”

Segir Björn einnig að „Píratar hafa lengi barist fyrir sjálf­stæðu ytra eftirliti með störfum lögreglu og þó einhverri nefnd hafi verið komið á, með símatíma á milli 10 og 11 á virkum dögum, er enn langt í land með að ná nágranna­þjóðum okkar í þeim málum, þrátt fyrir ýmis orð ráðamanna … eins og þetta svar dómsmála­ráðherra. Stað­reyndir málsins eru hins vegar að í frumvarps­drögum ráðherra er eftir­litið í formi tilkynninga­skyldu lögreglu til þessarar svokölluðu eftirlits­nefndar. Tilkynningar­skyldu en ekki eftirlits­skyldu.

Frumvarps­drögin segja: „Sé eftirliti skv. 2. mgr. 15. gr. a. hætt án þess að grunur sé um afbrot skal lögregla tilkynna nefnd um eftirlit með lögreglu um aðgerðina eins fljótt og unnt er […] eftirlit með einstaklingi hafi verið viðhaft að ósekju getur nefndin beint því til lögreglu­stjóra að tilkynna viðkomandi um að hann hafi sætt eftirliti.”

Hér er gott að hafa í huga að nafnlaus ábending dugar lögreglu sem rökstuðningur um að grunur sé um afbrot. Ég skil það mjög vel að lögreglan þurfi heimildir til þess að fylgjast með fólki sem er tengt skipulagðri glæpa­starfsemi vegna ábendinga frá samstarfs­aðilum í Evrópu og annarsstaðar.“

Tekur fram að „gagnrýnin á þetta frumvarp snýst ekki um nauðsyn þess. Gagnrýnin snýst um að tilefnið er notað til þess að gera úlfalda úr mýflugu og mun víðtækari heimild er gefin í lögum en nauðsyn er til, einmitt án viðeigandi varúðar­ráðstafanna vegna mögulegrar misbeitingar.

Í víðara samhengi þurfum við að spyrja okkur hvort fyrri ákvarðanir löggjafans hafa einmitt ekki valdið þessum vanda.“

Segir að lokum að „skipulögð glæpa­starfsemi er til vegna þess að vímuefni og vændi eru gerð ólögleg. Þar er verið að skipta einum vanda, fíkn og nauðung fyrir annan vanda – skipulagða glæpa­starfsemi. En skipulagðri glæpa­starfsemi fylgir einnig fíkn og nauðung og mun meira ofbeldi að auki. Fíknin hvarf ekki þegar hún var gerð ólögleg. Vændið ekki heldur. Við fengum lög um þessi mál og sem afleiðingu af þeim, skipulagða og vopnvædda glæpa­starfsemi. Er ekki kominn tími til þess að finna aðrar lausnir?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning