Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Guðjón og samsæriskenningarnar: ,,Ég öskraði í símann í þessu viðtali og var alveg brjálaður“

Guðjón Heiðar Valgarðsson
Guðjón Heiðar Val­garðs­son Mynd: Aðsend

Guðjón Heiðar Valgarðsson er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggva­sonar. Guðjón hefur lengi verið eins konar andlit samsæris­kenninga á Íslandi. Hann talar í þættinum hvernig það sé að vera í því hlutverki:

,,Það er mismikið hversu vel ég ber þann titil eftir því hversu hávær ég er. En þetta byrjaði líklega þegar árásin í Sýrlandi var í gangi og ég fór í viðtal í Harmageddon. Það hafði verið einhver frétt þarna um morguninn á forsíðu Frétta­blaðsins um að Assad hafi verið að festa börn á skrið­drekana sínan til að það yrði ekki skotið á þá. Mér fannst þetta svo öfgafull lygasaga að ég átti ekki til orð. Máni spurði mig út í fréttina og hvort ég væri til í að tala um hana. Ég sagðist alveg vera til í það, en sagði honum að ég kæmi til með að vera brjálaður og svo ákvað ég að vera brjálaður í þessu viðtali. Þannig að það var á einhvern hátt meðvituð ákvörðun hjá mér.,“ segir Guðjón og bætir við:

„Ég var búinn að mæta í nokkur önnur viðtöl að tala um Sýrland, en enginn sýndi því áhuga. Ég öskraði í símann í þessu viðtali og var alveg brjálaður og ég gekk mjög langt. Þetta vakti mikla athygli og flestir sögðu það sama: ,,Þú hefur alveg eitthvað til þíns máls, en af hverju varstu ekki rólegri?”. Þá benti ég fólki á að ég væri búinn að reyna það, en enginn hefði tekið eftir því.”

Hann segist hafa verið mjög hefð­bundinn í skoðunum langt fram eftir aldri. Gekk vel í skóla og keppti í Morfís og var alls ekki langt út fyrir boxið í skoðunum:

,,Ég er alinn upp í fjöl­skyldu sem er frekar íhaldssöm að mörgu leyti, þó að pabbi minni hafi verið pönkari í gamla daga. Ég hafði það gott sem krakki og gekk vel í skóla og fór frekar hefð­bundnar leiðir fram eftir aldri. Ég var í Morfís liðinu í skólanum og var ekkert mikið að efast um hluti almennt og kaus meira að segja Sjálfstæðis­flokkinn fyrst þegar ég fékk kosninga­rétt. Ég man eftir tilviki þar sem ég var að keppa í Morfís akkúrat þegar Íraks­stríðið var í gangi og dómarinn gerði óformlega könnun um hver væri með innrásinni í Írak og hver væri á móti. Ég man vel að ég gat ekki ákveðið mig og gat einhvern vegin ekki tekið neina ákvörðun, þó að þeir sem væru með mér í liði væru á móti. Þó að auðvitað sé ég á móti stríði var búið að segja manni svo margt slæmt um Saddam Hussein að ég var ekki viss. En frekar stuttu eftir þetta byrjaði ég að sjá hlutina í öðru ljósi. Fyrst í gegnum heimildar­myndir Michael Moore og svo fór ég að skoða meira tengt því.”

Eftir að hafa haft frekar hefð­bundnar skoðanir á unga aldri varð kúvending eftir atburðina 11. september 2001. Guðjón man vel eftir því hvað það var sem fékk hann til að breytast:

,,Ég var að spila á tónleikum á Menningar­nótt og á Austur­velli var einhver náungi að dreifa DVD mynd­diskum sem hétu ,,Confronting the evidence” og fjölluðu um 11. september. Ég tók hjá honum disk og hugsaði með mér að ég væri til í að gefa þessu séns. Svo fór ég á svaka fyllerí, sem endaði með því að ég og félagi minn vorum vaktir af 5 lögreglu­mönnum af því að hann hafði lagt bílnum sínum uppi á túni hjá lögreglu­stöðinni við Hlemm. Þannig að bíllykillin var tekinn af honum og við urðum að rölta heim til mín og ákváðum að horfa saman á þessa mynd. Ég var í sjokki eftir hana og fannst það sem sett var þar fram vera hafið yfir allan vafa í mörgum tilvikum. Eftir þetta gat ég ekki lokað augunum lengur.”

Í þættinum ræða Sölvi og Heiðar um 11. september, Jeffrey Epstein og margt fleira sem Guðjón hefur sterkar skoðanir á.

Hægt er að nálgast viðtalið við Guðjón Heiðar og öll viðtöl og podcöst Sölva Tryggva­sonar inni á www:solvitryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning