Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Hlaupa fyrir Samtök um Endómetríósu: „Þakklát fyrir hverjar þúsund krónur sem er heitið á mig“

Eyrún Telma – Endómetríósu er afar sársaukafullur sjúkdómur.
Eyrún Telma – Endó­metríósu er afar sárs­auka­fullur sjúk­dómur. Mynd: Aðsend

Reykja­víkur­maraþon Íslands­banka fer fram á Menningar­nótt næst­komandi laugardag. Fjöldi manns hefur skráð sig til keppni en tilgangurinn er sá að safna áheitum til handa einhverju góða­gerðastarfi, gegn því að hlaupa ákveðnar vega­lengdir. Þær Karen Ösp Friðriks og Eyrún Telma Jóns­dóttir taka þátt í hlaupinu en þær safna nú báðar áheitum fyrir Samtök um endómetríósu. Þær gegna báðar stöðu í aðal­stjórn samtak­anna og eiga það sameiginlegt að hafa þurft að fara í legnám fyrir þrítugt vegna sjúk­dómsins.

Stórt og gott bakland

Karen og fjöl­skylda á Regn­boga­stræti á Seyð­is­firði

Karen Ösp er 30 ára gömul. Hún hefur þjáðst af endómetríósu síðan hún var níu ára. Maðurinn hennar, Óskar, ætlar líka að hlaupa fyrir sama málefni.

„Í fyrra fór ég í legnám þar sem öll kven­líffærin voru tekin og eignaðist nýtt líf. Þetta er auðvitað ekki auðveld ákvörðun að taka en ég er svo heppin að eiga níu ára stjúpson og hund þannig að ég valdi að taka þessa stóru ákvörðun fyrir akkúrat þetta, eiga líf og lifa lífinu en ekki berjast við sjúk­dóminn alla daga þar sem hann var bara bundinn við legið hjá mér,“ segir hún.

„Ég hef aldrei hlaupið áður en fannst þetta fullkomið tækifæri fyrst ég er svona hraust í dag. Ég finn fyrir miklum stuðning og er maðurinn minn líka að hlaupa, strákurinn okkar, móðir mín, mágkona, bróðir minn og vinur hans og annar vinur okkar þannig baklandið mitt er mikið. Það er náttúru­lega ómetanlegt í alla staði að finna fyrir meðbyrnum.“

Karen situr í stjórn samtak­anna og segir þau hafa gert mikið til þess að vekja athygli á sjúk­dómnum undan­farin ár.

„Ég vil endilega halda því á lofti. Það þarf að útrýma því að sárir túrverkir séu eðlilegt fyrirbæri sem allir leghafar ganga í gegnum. Svo þarf líka að horfast í augu við það að einn af hverjum tíu leghöfum er með endómetríósu sem gerir sjúk­dóminn jafn algengan og sykursýki.“

Heita má á Karen hér.

Aldrei liðið jafn vel líkamlega

Eyrún Telma, sem er 29 ára, hleypur einnig fyrir samtökin en hún hefur glímt við endómetríósu frá því að hún var unglingur. Blaða­maður Mannlífs spurði hana af hverju hún hafi ákveðið að hlaupa fyrir samtökin.

Eyrún og tví­burarnir

„Ég ákvað að hlaupa í ár og fyrir endó-samtökin vegna þess að ég er sjálf með endómetríósu og hef glímt við alveg síðan ég var unglingur. Endósamtökin hafa reynst mér svo ótrúlega vel síðustu ár og mér fannst tilvalið að prófa að hlaupa í maraþoni þar sem ég get gefið eitthvað til baka til samtak­anna. Auðvitað skiptir það líka miklu máli að vekja athygli á málstaðnum og gera öðrum viðvart um helstu einkenni endómetríósu. Ég vil því hvetja þau sem grunar að þau séu með endómetríósu, eða börnin þeirra, til að hafa samband við samtökin fyrr en síðar til þess að grípa fyrr inn í og stytta þar með greiningar­tímann sem er að meðaltali 7 ár.“

Eyrún segir að þetta sé í fyrsta skipti sem hún hefur haft heilsu til að taka þátt í hlaupinu.

„Þetta er í fyrsta skipti sem mér finnst ég hafa heilsu til þess að taka þátt. Þó ég sé vissulega alls ekki í hlaupa­formi og hafi aldrei á ævinni hlaupið 10 kílómetra, hef ég trú á mér og treysti líkamanum í þetta. En það er af því að ég fór í legnám í mars og mér hefur aldrei liðið eins vel líkamlega.“

Eyrún Telma útskýrir að hún hafi verið með annan sjúkdóm sem sé systur­sjúkdómur endómetríósu.

„Ég var með annan sjúkdóm sem kallast adenómýósa og er svipaður sjúkdómur og endó, en adenó frumurnar eru einungis stað­bundnar inni í leginu. Þess vegna í mínu tilfelli finn ég fyrir svaka­legum bata eftir að leg og legháls var tekinn. Ég tek það samt fram að legnám læknar ekki endómetríósuna þó svo að það sé lækning við adenómýósunni.“

Eyrún Telma er sömuleiðis með afar gott stuðningsnet í kringum sig.

„Ég á litla dásamlega fjöl­skyldu sem saman stendur af eigin­manni mínum, Rúnar og tvíbura­drengjum okkar, Atlasi og Eldari en nýlega misstum við fjölskyldu­hundinn okkar Dolla.“

Hún segist hafa fundið mikinn og áþreifanlegan stuðning frá fólki í kringum sig, sem og á samfélags­miðlum. „Það er ótrúlegt hvað skilningur fólks eykst meira með árunum og ég bind miklar vonir við að eftir nokkur ár verði endómetríósa sjúkdómur sem allir vita um. Varðandi hlaupið þá er ég aðeins hálfnuð með markmiðið hjá mér svo ég væri afskaplega þakklát fyrir hverjar þúsund krónur sem er heitið á mig. Frá árinu 2021 hef ég setið í vara­stjórn samtak­anna en á þessu ári fékk ég sæti í aðal­stjórn og er það mér afar mikilvægt.“

Eyrún Telma bætir því svo við að hún muni ekki láta það stoppa sig í að hlaupa þótt hún þurfi að vinna á laugar­daginn: „Ég er það all-in í að hlaupa þetta að ég hleyp sjálf á föstu­daginn og sleppi tíma­tökunni, vegna þess að ég er bundin í vinnu allan laugar­daginn.“

Þau sem vilja styrkja Eyrúnu Telmu geta gert það hér.

Fyrir þau sem vilja vita meira um sjúk­dóminn má hér lesa lýsingu samtak­anna um endómetríósu:

Um 10% fólks sem fæðist með leg er með endómetríósu eða um 176 milljónir í heiminum. Endómetríósa er ekki bara slæmir túrverkir. Sjúk­dómnum geta fylgt miklar kvalir og ýmsir erfiðir fylgi­kvillar, þar á meðal meltingar­vandræði og ófrjósemi. Meðal­greiningar­tími er 7-8 ár. Stuðningur og fræðsla er megin­verkefni Samtaka um endómetríósu. Samtökin vinna ötullega að því að fræða almenning og heilbrigðis­starfsfólk um sjúk­dóminn. Margt fólk með endómetríósu finnur fyrir vantrú annarra og þarf enn þann dag í dag að berjast fyrir viðurkenningu á líðan sinni og einkennum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið