Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Anna segir þetta kosti að leigja íbúð á Tenerife: „Kannski er þetta bara snobb“

Anna Kristjáns.
Anna Krist­jáns.

Gleði­gjafinn og húmor­istinn Anna Kristjáns­dóttir, vélstjóri á eftir­launum, skrifar færslur á hverjum degi um lífið á Tenerife eða Paradís eins og hún kallar hina spænsku eyju. Færslurnar birtir hún á Facebook við fádæma vinsældir.Í nýjasta pistli sínum skrifar hún hugleiðingar sínar um verðlagið á eyjunni fögru og kemur þar meðal annars inn á það sem margur Íslend­ingurinn hefur sjálfsagt verið að velta fyrir sér: Hvað kostar að leigja íbúð á Tenerife. Leyfum Önnu að svara því:„Að leigja íbúð á túrista­svæðunum í suðri er miklu dýrara. Það er vissulega hægt að leigja íbúðir utan túrista­svæðanna og er það jafnvel ódýrara. Ég leigi íbúð með tveimur svefn­herbergjum á 950€ á mánuði, reyndar allt innifalið. Það hefur ekkert verið byggt í Los Cristianos í nokkur ár og mikill og vaxandi skortur á íbúðum og sem leiðir af sér hækkað leiguverð á íbúðum. Veit ég nýtt dæmi um íbúð með einu svefn­herbergi og án sund­laugar á 1100€ á mánuði í gamla bænum,“ segir Anna og bendir á að það er líka hægt að finna ódýrara húsnæði:„Það er svo ljóst að um leið og komið er út fyrir Arona og Adeje er verðið orðið þolanlegt. Þannig leigir vinkona mín tveggja svefn­herbergja þakíbúð í El Médano á 750€ á mánuði. Það er að vísu engin sundlaug, en mjög stórar þaksvalir þaðan sem auðvelt er að fylgjast með flug­umferðinni við flug­völlinn Tenerife sur eða liggja í sólbaði. Kannski er þetta bara snobb að vilja búa innan um alla túristana.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Vissu ekki að 1.468 skilaboð hefðu varðveist
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt