Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Þjóðþekktir um brotthvarf Eddu af skjánum: „RÚV er eitt­hvað að mis­skilja hlut­verk sitt“

Sigmar Vilhjálmsson, athafnarmaður, Edda Andrésardóttir, fréttaþula og Logi Bergmann. Samsett mynd.
Sigmar Vil­hjálms­son, athafn­ar­maður, Edda Andr­és­ar­dóttir, frétta­þula og Logi Bergmann. Samsett mynd.

Edda Andrésdóttir, hefur fært Íslendingum fréttir heim í stofu síðustu fimmtíu árin, en hún hefur verið einn dáðasti frétta­þulur landsins.

Margir hafa sent Eddu kveðjur og þar á meðal er fyrrum starfs­maður Eddu, Logi Bergmann. Í færslu sinni á Facebook segir hann:

„Mér finnst þetta merki­­legur dagur. Ég hélt hrein­­lega að Edda myndi aldrei hætta að lesa fréttir! En hún ætlar sem­­sagt að hætta í kvöld. Við náðum tólf skemmti­­legum árum saman á Stöð 2. Þar gekk á ýmsu en alltaf var Edda eins og kletturinn í hafinu,“ skrifar Logi á Face­book.

Logi Berg­mann vann með Eddu Andrés­dóttur sem frétta­þulur á Stöð 2 í mörg ár og sendir henni kveðju í til­efni þess að Edda las sinn siðasta frétta­tíma í gær eftir um þrjátíu og tvö ár á Vísi og um hálfa öld í blaða- og frétta­mennsku.

„Hún er ekki bara frá­bær lesari heldur hefur hún alltaf haft gaman að því að gera það sem hún gerir og veit upp á hár hvernig á að gera það. Ég sakna Eddu sem vinnu­­fé­laga og ég á líka eftir að sakna hennar af skjánum. Myndirnar eru frá tíma okkar saman á stöðinni (það er mögu­­lega búið að eiga við eina þeirra) og ég vona að við eigum eftir að fá fleiri myndir af Eddu á skjánum. Þar á hún heima,“ skrifar Logi.

Kveðjur Ríkisútvarpsins fóru ekki vel í Sigmar, athafnarmann

Edda sagði í viðtali á RÚV í gær vera þakk­lát fyrir að fá að taka á­kvörðunina sjálf sem hefur verið að gerjast í smá tíma. Hún úti­lokar þó ekki að birtast á ný á skjánum með þætti á Stöð 2. En fyrst ætlar hún að byrja að taka til í bíl­skúrnum.

Sig­mar Vil­hjálms­son, er hugsi eftir að hafa hlustað á kveðju RÚV og lýsti sinni skoðun á Twitter í gær.

Ríkis­út­varpið sem starfar í al­manna­þágu sagði Stöð 2 „helsta sam­keppnis­aðila Frétta­stofu RÚV“ og bendir Simmi á að RÚV sé eitt­hvað að mis­skilja hlut­verk sitt.

„Í fréttum í kvöld: “..helsti samkeppnis­aðili Frétta­stofu RÚV..” var sagt um @stod2 í tilefni þess að Edda Andresar er að hætta. Ef @RUVfrettir lítur á aðrar frétta­stofur sem samkeppnis­aðila þá er RÚV að misskilja hlutverk sitt í samfélaginu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið