Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Stór­söngv­ari selur í Laug­ar­dalnum

Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Fólk

Heitustu jóla­gjaf­irnar 2026

Fólk

Katla stofnar fyr­ir­tæki með móður sinni

Innlent

Séra Hjördís stóð með for­eldrum Bryn­dísar Klöru á þeirra erf­ið­ustu stundum

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum

Minning

Borgþór Vest­fjörð Kjærne­sted er fall­inn frá

Heimur

Gam­an­leik­ar­inn Anthony Clark lát­inn

Innlent

Eft­ir­litið fór fram þrátt fyrir meint veik­indi hús­ráð­anda

Ungur rafhjólaökumaður dæmdur eftir banaslys á gangbraut

„Mamma átti aldrei mögu­leika.“

Gloria Stephenson
Gloria Steph­en­son Gloria mætti örlögum sínum fyrir ári síðan Mynd: Trausti Hafsteinsson

Hroll­vekj­andi upp­tökur sýna augna­blikið þegar ungur öku­maður raf­hjóls flúði vett­vang eftir að hafa ekið á og banað langömmu á gang­braut.

Billy Stokoe, 19 ára, var dæmdur í sex ára og níu mán­aða fang­elsi eftir að hafa ekið á Gloriu Steph­en­son, 86 ára, á miklum hraða í Sund­er­land þann 16. maí í fyrra.

Við slysið var Stokoe undir áhrifum kanna­bis­efna og las skila­boð í far­síma sem hann hélt á í vinstri hendi, sem kom í veg fyrir að hann gæti notað brems­una. Árekst­ur­inn var svo harður að Steph­en­son lést sam­stundis.

Örygg­is­mynda­vélar við göt­una náðu því þegar Stokoe skall á kon­unni og kastað­ist af öfl­ugu Sur-Ron Light Bee X raf­hjóli sínu, sem kost­aði um 4.000 pund (659 þús­und krónur) en því var ekið ólög­lega á almennum vegum. Á upp­tök­unum sést hann taka af sér lamb­hús­hettu, hlaupa að kon­unni þar sem hún lá á göt­unni og stuttu síðar stökkva aftur á hjólið og flýja vett­vang.

Lögregla hand­tók hann síðar eftir að móðir hans fór með hann á lög­reglu­stöð til að gefa sig fram. Fyrstu orð hans við lög­reglu voru: „Er hún dáin?“

Við dóms­upp­kvaðn­ingu fyrir Newcastle Crown Court á föstu­dag ját­aði hann sök fyrir hættu­legan akstur sem leiddi til dauða, akstur án öku­rétt­inda og akstur ótryggðs öku­tækis.

Hann mun geta sótt um reynslu­lausn eftir að hafa afplánað helm­ing refs­ing­ar­innar og verður sviptur öku­rétti í fimm ár eftir lausn úr fang­elsi.

Fjöl­skylda Steph­en­son lýsti hinum átak­an­lega missi „fal­legrar, gáf­aðrar og afar sjálf­stæðrar“ langömmu með „mikla lífs­gleði“. Steph­en­son, sem hafði orðið ekkja þrisvar sinnum, hafði átt far­sælan feril innan breska heil­brigð­is­kerf­is­ins. Hún hafði eign­ast fjögur börn og át 13 barna­börn.

Dætur hennar sögðu hana hafa verið hrausta og virka og að hún hefði verið á leið í frí til Lanzarote þar sem hún ætti stóran vina­hóp. Hún hafi verið að ganga með hund dóttur sinnar til að ná mark­miði sínu um 10 þús­und skref á dag þegar slysið varð.

Dóttir hennar, Lisa Trench, sagði fyrir dómi:

„Þú, á ólög­lega hjól­inu þínu. Þú, á ofsa­hraða. Þú, í sím­anum. Þú, undir áhrifum kanna­bis. Mamma átti aldrei mögu­leika.“

Önnur dóttir, Julie Francis, gagn­rýndi Stokoe harð­lega fyrir að hafa flúið vett­vang.

„Hann hljóp burt og skildi hana eftir eins og hún væri ekki neitt. Hann er hug­leys­ingi sem hugs­aði aðeins um sjálfan sig. Hann skildi hana eftir eina til að deyja eins og rusl í ræs­inu,“ sagði hún.

Fjöl­skyldan gagn­rýndi einnig skort hans á iðrun og benti á að aðeins átta dögum eftir dauða Steph­en­son hefði hann farið á Wembley-leik­vang­inn til að horfa á Sund­er­land spila og síðar óskað eftir breyt­ingu á skil­orði sínu svo hann gæti farið í utan­lands­ferð.

Lög­reglan í Nort­humbria sagði að Stokoe hefði sést aka hættu­lega um götur Sund­er­land fyrr sama dag og sveigja á milli bíla á miklum hraða.

„Þetta var slys sem beið eftir að ger­ast,“ sagði rann­sókn­ar­stjór­inn Billy Mulligan hjá lög­regl­unni og bætti við að hjólin gætu farið úr 0 í 60 mílur á klukku­stund hraðar en flestir bílar.

Hann sagði upp­tökur sýna Stokoe aka án þess að halda í stýrið, án þess að nota bremsur og sveigja á milli bíla áður en hann ók á Steph­en­son á gang­braut­inni.

„Á meðan veg­far­endur reyndu að hjálpa Gloriu steig hann aftur á hjólið og yfir­gaf svæðið,“ sagði Mulligan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Heimur

Móðir RJ Mitte minn­ist hans mán­uði eftir and­látið

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Rabbíni ferð­ast um Vest­ur­bakk­ann til að kynna sér ofbeldið

Heimur

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram

Mike O'Malley ræddi við Anthony Clark aðeins þremur vikum fyrir andlát hans og minnist hans sem einstaklega fyndins manns.
Heimur

Kynlíf enn eitt öfl­ug­asta vopn leyni­þjón­usta

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Lindberg kallar eftir því að stríð­inu í Súdan verði hætt

Heimur

Kona fannst látin í bíl á Fuer­teventura

Heimur

Tveir heið­ursverðir hnigu niður við hlið Macrons í opin­berri mót­töku