Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Gunnar Smára grunar Davíð um græsku: „Má svo sem vel vera að útgerðin borgi Davíð 85 m.kr. á ári“

Gunnar Smári Egilsson Sósíalista­foringi spáir í laun Davíðs Oddssonar í nýrri færslu á Facebook. Þykir honum launin grun­samlega há.

Í færslu sem birtist í gær í Facebook-hópi Sósíalista­flokksins, veltir Gunnar Smári fyrir sér launum ritstjóra Morgun­blaðsins, Davíðs Oddssonar, sem honum þykir grun­samlega há. Rifjar hann upp í byrjun færslunnar frumvarp að lögum sem tryggðu forystu­fólki Íslands betri kjör.

„Davíð Oddsson lét Halldór Blöndal leggja fram frumvarp að lögum um eftirlaun forseta Íslands, ráðherra, alþingis­manna og hæstaréttar­dómara árið 2003 og fékk forystu­fólk annarra flokka til að samþykkja, enda færði það því stóraukin réttindi og enn meira fé úr almanna­sjóðum.

19. gr. lagana hljóðar svo:

„Nú tekur sá sem nýtur eftir­launa samkvæmt lögum þessum við nýju starfi og skerðast þá eftir­launa­greiðslur til hans fram að 65 ára aldri um sem nemur 0,5% af áunnum rétti fyrir hvern mánuð eða brot úr mánuði sem vantar á 65 ára aldur frá því að við starfi er tekið. Sama skerðing verður á eftir­launum þess sem er í starfi er hann öðlast rétt til eftir­launa samkvæmt lögum þessum. Skerðing greiðslna samkvæmt þessari grein fellur þó niður þegar látið er af starfi.“,“ skrifaði Gunnar Smári.

Segir Gunnar Smári að samkvæmt þessu eigi Davíð ekki að vera á eftir­launum samhliða launum sínum sem ritstjóri. „Sjá má af greinar­gerð frum­varpsins að Davíð sá fyrir sér að stunda ritstörf eftir að hann hætti í pólitík. Þar stendur:

„Rétt er að vekja athygli á að í greininni er talað um „starf“ en samkvæmt almennri merkingu er það aðalstarf sem jöfn mánaðar­laun koma fyrir. Er með orðunum „tekur … við nýju starfi“ höfð hliðsjón af orðalagi 2. mgr. 34. gr. laga um réttindi og skyldur starfs­manna ríkisins, nr. 70/1996, þótt skerðingin sé að öðru leyti ólík. Ekki er gerður greinar­munur á hvort starfið er opinbert eða á einka­markaði. Þannig felst ekki í greininni að tilfall­andi störf, þótt fyrir þau komi tekjur, valdi skerðingu eftir­launa. Nefna má tekjur af setu í stjórnum, nefndum og ráðum, af tilfall­andi kennslu eða fyrir­lestrum, af ritstörfum eða annarri listrænni starfsemi og öðru þess háttar.“,“Í niðurlagi færslunnar segir Sósíalista­foringinn að kanna þyrfti þessi háu laun Davíðs.„Nú stundar Davíð ritstörf, en þau eru ekki tilfall­andi heldur fast starf svo hann ætti ekki að

vera á eftir­launum samhliða starfi sínu sem ritstjóri. Mér finnst að einhver blaða­maður ætti að kanna þetta, hvaðan þessar miklu tekjur koma. Það má svo sem vel vera að útgerðin borgi Davíð 85 m.kr. á ári (þessi laun plús launa­tengd gjöld) fyrir staksteina- og leiðara­skrif, en það er vert að kanna hvort við skatt­borgarar séum að borga manninum þegar við þurfum þess ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið