Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Kevin Spacey fyrir dóm vegna fjögurra kynferðisbrota gegn þremur mönnum

Kevin Spacey
Kevin Spacey

Óskars­verðlauna­leikarinn Kevin Spacey neitaði sekt í fjórum kynferðis­brotamálum fyrir dómi í Englandi í morgun. Réttarhöld munu því fara fram og er áætlað að þau hefjist í júní á næsta ári.

Kevin Spacey er sakaður um að hafa brotið kynferðis­lega á þremur mönnum. Hin meintu brot eru sögð hafa verið framin á árunum 2005 til 2013 á meðan hann starfaði sem listrænn stjórn­andi Old Vic leik­hússins í London.

Hann er sakaður um tvö kynferðis­brot gegn einum manni, sem nú er á fimmtugsaldri, í London í mars árið 2005.

Annað brot sem hann er kærður fyrir snýr að manni sem nú er á fertugsaldri. Spacey er sakaður um að hafa brotið á honum kynferðis­lega með því að neyða hann til samfara, í London í ágúst árið 2008.

Hann er einnig sagður hafa beitt mann, sem nú er á fertugsaldri, kynferðis­ofbeldi í Gloucestershire í apríl árið 2013.

Lögregla hóf að skoða málið árið 2017 eftir að ásakanir komu fram og tóku Spacey í viðtal tveimur árum síðar. Leikarinn hefur neitað öllum ásökunum sem á hann hafa verið bornar.

Stjórn­endur Old Vic leik­hússins báðust á sínum tíma afsökunar og gengust við því að hafa fengið veður af óviðeigandi hegðun Spacey meðan hann var þar sem listrænn stjórn­andi.

Eftir að ásaknirnar á hendur leik­aranum komu fram var hann sviptur alþjóð­legum Emmy-verð­launum og aðal­persónan sem hann lék í vinsælu Netflix-þáttunum House of Cards var drepin og hann rekinn úr verk­efninu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Annars staðar má víða búast við skúrum eða slydduéljum
Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Fíllinn kom út úr skóginum í veg fyrir manninn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn