Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Gerir stólpagrín að kommentakerfinu

Þor­gerður Katrín snýr við tafl­inu og hæð­ist að lykla­borðs­ridd­urum. „Ég var reyndar í brjósta­hald­ara.“

Þorgerður Katrín
Þor­gerður Katrín Lætur ekki að sér hæða. Mynd: NICOLAS TUCAT / AFP

„Þetta er erfitt líf enda eld­ist hú neins og ban­ani, mikið lagt á herðar Krist­jáns,“ valdi Sævar Karlsson að lýsa yfir um Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur utan­rík­is­ráð­herra og eig­in­mann hennar, Kristján Arason, fyrir alþjóð.

Þor­gerður hefur nú ákveðið að svara honum og öðrum sem hafa ávarpað hana á Facebook, með mynd­bandi þar sem hún bregst við kommenta­kerf­inu.

„Þetta er ein mesta móðgun sem ég hef fengið á sam­fé­lags­miðl­unum núna síð­ustu daga. Að líkja mér við ban­ana. Það vita allir sem mig þekkja að ég þoli ekki ban­ana. Ég hefði frekar viljað „mygluð app­el­sína“ eða eitt­hvað, en ekki ban­ani. Þannig að ég tek þetta mjög nærri mér,“ svarar Þor­gerður.

„Þú ert land­ráða­trunta, það á að loka þig inn í búri,“ skrifar Guð­mundur Max nokkur á Facebook. „Búr? Mér líður ekki vel inni í búri og það bara eiga allir að vera frjálsir,“ svarar hún.

„Meiri org­ían þetta stjórn­ar­sam­starf,“ segir Þor­steinn Erlings­son, ekki skáld.

„Það er mjög gaman hjá okkur Ingu og Kristrúnu. Það bara nokkuð skemmti­leg orgía þar í gangi,“ svarar Þor­gerður

„Alger­lega ósam­mála því, en ég sé að þú ert kom­inn með fimm­tíu og eitt­hvað læk, allt frá körlum,“ segir hún við Eli Uno nokkurn, sem hafði hellt úr skálum visku sinnar: „Ég er far­inn að halda að konur séu óhæfar í stjórn­málum … skemma meira en þær laga“.

Einn þeirra, Ægir Máni Bjarna­son, gengur lengra en flestir. „Hún er stríðs­glæpa­maður og ekk­ert annað. Vonandi fær hún dauða­refs­ing­una,“ lýsir hann fjálg­lega yfir.

„Ég er nú á móti dauða­refs­ingum, bara svona í prinsipp­inu,“ svarar Þor­gerður.

„Setja þig í gapa­stokk! Þú hefðir gott af því,“ segir Sigurður Valdimar Stein­þórs­son.

„Nei, hann hentar mér ekki,“ svarar Þor­gerður. „Ekki spennt fyrir honum.“

Theodór Hertervig lætur þau fleygu orð falla: „Út með gæruna.“

„Gæruna? Íslenska gæran er mjög fín. Ég styð hana.“

Anna Fia spyr Þorgerði beint út: „Þor­gerður Katrín, hvenær ætlar þú að hætta að vinna hjá rík­is­stjórn­inni?“

„Ég var nú kosin til fjög­urra ára,“ svarar Þor­gerður. „Þrjú ár eftir. Við sjáum til hvort við fáum ekki bara end­ur­kjör.“

„Ertu ekki í brjósta­hald­ara hjá Gísla Marteini,“ spyr einn með bíl í prófíl­mynd.

„Ég var reyndar í brjósta­hald­ara hjá Gísla Marteini. En hann var hlýra­laus hald­ari.“

„Farðu i frí. Plís, segir Karlsson nokkur og Þor­gerður þakkar honum.

„Þetta finnst mér nú vera gott ráð,“ segir hún og lýsir því að hún sé einmitt í Þýska­landi á leið í helg­ar­frí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Býður Trump að nefna heil­brigð­is­kerfi eftir sér

Abdul El-Sayed segist tilbúinn að láta forsetann fá heiðurinn af opinberu heilbrigðiskerfi, styðji hann að allir Bandaríkjamenn fái aðgang að þjónustu.
Heimur

Robert Patt­in­son næsti James Bond

Pólitík

Segir Hildi Björns­dóttur beita tvö­földum mæli­kvarða á fjár­mál borg­ar­innar

Heimur

Brand óskaði eftir auka­teppi og sér­sjampói í fang­els­inu

Pólitík

Sig­mundur sak­aði rík­is­stjórn­ina um „dára­skap“ og Kristrún svar­aði fullum hálsi

Pólitík

Pólitík

Vill láta lottó ráða hverjir sitja á Alþingi

Björn Leví Gunnarsson vill að kosningakerfið endurspegli betur að þingmenn séu kjörnir sem einstaklingar en ekki fulltrúar flokka.
  • Pólitík

    Ingvar yfir­gefur Viðreisn

  • Pólitík

    „Ísland á ekki að vera þekkt sem sölu­staður vændis“

  • Pólitík

    Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

  • Pólitík

    „Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

  • Pólitík

    Segir fyr­ir­spurnir Guðlaugs Þórs eðli­legar en hafnar sam­an­burð­inum við Pírata