Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Segir Guðlaug Þór vera föðurlandssvikara

„Þetta er raun­verulegt landráð“

Guðlaugur Þór Þórðarson
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son Guð­laugur Þór er föð­ur­lands­svik­ari, sam­kvæmt Pétri Mynd: Víkingur

Pétur Eggerz Pétursson, aðgerðar­sinni, tónlistar­maður og hreyfi­hönnuður, segir Guðlaug Þór Þórðarson vera land­ráðamann í mynd­skeiði sem vakið hefur gríðar­mikla athygli á samfélags­miðlum.

Í mynd­skeiðinu rekur Pétur ástæður þess að hann telji Guðlaug Þór vera land­ráðamann.

„Vissuð þið að þessi maður hér, hann Guðlaugur Þór, hann gerðist raun­verulega sekur um landráð 2017. Maðurinn var utan­ríkis­ráðherra og fór á bakvið Alþingi á fund með umboðs­manni Banda­ríkjanna.“

Pétur heldur áfram:

„Hann heldur þessu leyndu frá bæði Alþingi og almenningi en á þessum fundi skrifa þeir undir nýjan varnar­samning.“

Birtir Pétur síðan stutt brot úr frétta­skýringu Kveiks á RÚV, sem birtist í apríl á síðasta ári, um þennan leyni­samning sem Guðlaugur Þór gerði við Bandaríkja­menn.

Og heldur síðan áfram reiði­lestrinum:

„Þessi nýji ólöglegi varnar­samningur gefur Bandaríkja­mönnum fulla heimild til þess að koma hvert sem er á Íslandi og hvenær sem er og setja upp hernaðar­búðir. Þannig að ef Banda­ríkin ætluðu að fara í hernaðar­aðgerðir gegn Grænlandi þá gera þau það héðan. Það sem er ennþá ógeðslegra er að þessi samningur fríar Bandaríkja­menn alfarið allri ábyrgð. Þannig að ef það eru sprengju­árásir hér á Íslandi eða það verður innviða­tjón, hvað sem getur fylgt þessum hernaði, þá skuldar Banda­ríkin Íslandi ekki krónu. Það er engin ábyrgð á Banda­ríkjunum, hún er öll á okkur.“

Að lokum setur hann fréttir af nýjum hótunum Donalds Trump gagnvart þeim þjóðum sem verja hagsmuni Grænlands, í samhengi við varnar­samning Guðlaugs Þórs.

„Þetta er raun­verulegt landráð. Þannig að ef þið eruð að velta fyrir ykkur af hverju Ísland er ekki á lista með Noregi, Danmörku, Svíþjóð, Englandi, Þýska­landi, yfir þau lönd sem Banda­ríkin ætla að setja verndar­tolla á af út af því að þau standa með Grænlandi, þá er það út af því að Ísland er í eigu Banda­ríkjanna af því að Guðlaugur Þór er land­ráðamaður sem framseldi Ísland á bakvið Alþingi og á bakvið íslensku þjóðina. Þannig að ef þið mætið honum á förnum vegi, getið þið endilega minnt hann á það að við vitum að hann er fucking föðurlands­svikari.“

Myndskeið Péturs hefur fengið mikla athygli en um 4.200 manns hafa líkað við hana og 25 hafa deilt henni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Pólitík

„Staðan á vissum tímum sólar­hringsins orðin nánast óbærileg“

Umferðartafir á Reykjanesbraut í Hafnarfirði eru miklar á álagstímum, að sögn Árna Rúnars Þorvaldssonar, sem kallar eftir úrbótum.
  • Aðeins þrír róðrar áður en hjónin riftu kaupunum

  • „Af tvennu illu er skárra að böðullinn sé ekki í felulitum frjáls­lyndis“

  • Segir Ísland útiloka einmitt þá innflytj­endur sem landið þarf á að halda

  • Segir trygginga­félögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda