Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Óttar er stoltur mömmustrákur: „Ákaflega hollt fyrir unga menn að eiga sér meðvirka móður“

Óttar Guðmundsson geðlæknir segir í bakþanka Frétta­blaðsins í dag að það geti verið hollt fyrir unga menn að eiga meðvirka móður, þrátt fyrir að það geti haft slæm áhrif á samskipti við makann. Taumlaus aðdáun móður trompi það.

„Ég hitti Gretti sterka Ásmundsson á dögunum á fundi í Félagi Mömmu­drengja (FM). Þetta eru samtök full­orðinna karlmanna sem eru mjög háðir mæðrum sínum. Móðir Grettis, Ásdís á Bjargi, stóð alltaf þétt að baki sonar síns þrátt fyrir öll hans glæpaverk. Formaður félagsins er Oddur Sigurðsson lögmaður sem gerði garðinn frægan í upphafi átjándu aldar. Hann var drykk­felldur ofbeldis­maður sem oftar en einu sinni var dæmdur frá ærunni og öllum sínum auðæfum. Sigríður Hákonar­dóttir móðir hans tók honum fagnandi eftir hvern ósigur og fjár­magnaði ný réttarhöld. Sturla Sighvatsson frændi minn er líka í félaginu ásamt Skarphéðni Njálssyni,“ segir Óttar.

Mömmu­strákar eigi þó ekki sjö dagana sæla. „Margir makar kvarta sáran undan sambandi mömmu­drengja við móður sína. Þeim finnst samskiptin of náin og móðirin allt of afskiptasöm. Sumar verða afbrýði­samar og sjá ofsjónum yfir áhrifa­valdi og meðvirkni móðurinnar. Þetta getur valdið hatrömmum átökum í samskiptum hjóna. Sannir mömmu­strákar taka þessari gagnrýni létt enda kunna þeir vel að meta taumlausa aðdáun móður sinnar.“

Óttar kemur svo úr skápnum sem mömmu­strákur sjálfur. „Ég er meðlimur í FM vegna þess að móðir mín heitin missti aldrei trúna á einkason sinn þrátt fyrir ýmsar uppákomur. Unglinga­herbergið stóð alltaf til reiðu eftir misheppnaðar sambúðir eða hjónabönd. Ég held að það sé ákaflega hollt fyrir unga menn að eiga sér meðvirka móður sem dáist að þeim. Góð móðir skilur ekkert í því hvað sonurinn er óheppinn með konur. Heimurinn er fullur af freistingum og vafasömu fólki sem reynir að draga soninn á tálar. Hún veit að sonurinn vill öllum vel þótt honum séu mislagðar hendur. Mamma skilur nefnilega allt!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning