Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pálmi Gestsson gagnrýnir „flissara“ á Facebook

„Þetta er ótrúlegur harm­leikur. Og meirihluti þeirra sem bregðast við hlær, flissar.“

Pálmi Gestsson
Pálmi Gestsson Pálmi furðar sig á hegðun fólks Mynd: Borgarleikhúsið

Leikarinn Pálmi Gestsson gagnrýnir harðlega þá sem bregðast við alvarlegum færslum á samfélags­miðlum með hlátur­körlum. Í nýrri Facebook-færslu segist hann eiga erfitt með að skilja hvers vegna fólk noti slíkt viðbragð við fréttum af hörmungum á borð við mannskæða gróður­elda.

Pálmi segir að hann hafi undan­farið velt þessum svokölluðu „flissurum“ fyrir sér.

„Þetta er ótrúlegur harm­leikur. Og meirihluti þeirra sem bregðast við hlær, flissar. Það er háttur fliss­arana að þeir hafa ekkert að segja, koma ekki fram með neina skoðun, bara flisskall,“ skrifar hann.

Hann segir að sömu einstaklingarnir birtist gjarnan þegar hann setji fram skoðanir á Facebook og bregðist við með hlátur­körlum þótt efnið sé ekki fyndið.

Til að kanna viðbrögðin segist Pálmi hafa gert litla tilraun. Hann fór inn á síður nokkurra þeirra sem notuðu hlátur­viðbrögð við færslum hans og setti sjálfur hlátur­karl við færslur þeirra.

„Ég hef grun um að þeim hafi ekki fundist það fyndið og lái þeim hver sem vill,“ skrifar hann.

Pálmi segir að vissulega sé ekkert athuga­vert við að fólk sé hlátur­milt, en hann hafi grun um að hlátur­viðbrögðin séu oft notuð til að gera lítið úr bæði umræðu­efninu og þeim sem tjá sig.

Sem dæmi nefnir hann umræðuna um loftslags­breytingar. Þar segir hann að þegar virtir vísinda­menn leggi fram niður­stöður sínar bregðist sumir við með hlátur­körlum í stað þess að færa rök fyrir máli sínu. Pálmi vísar þar í frétt á RÚV þar sem íslenskur vísinda­maður segir loftslags­breytingar helstu orsök vaxandi gróður­elda í heiminum.

„Þarna kemur spreng­lærður, virtur og viðurkenndur vísinda­maður með djúpstæða þekkingu á málefninu og segir okkur hvað er að gerast og þá koma Pétur og Páll og fullt af alls konar kjánum sem enginn veit deili á og hvað gera þeir? Jú, setja hlátur­kall og flissa eins og vísinda­maðurinn sé hálfviti og þeir sjálfir hafi miklu meiri þekkingu á því sem er að gerast. Ótrúlegt alveg.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“