Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Fuglaflensa staðfest í rauðrefum: „Óeðlilega lítið af yrðlingum á Hornströndum í ár“

Heimsskautarefur Mynd/Envato Elements
Heims­skauta­refur Mynd/Envato Elements

Náttúru­fræði­stofnun Íslands hefur ekki enn borist hræ frá yrðlingi til að staðfesta hvort hann hafi fallið af fugla­flensu. Stofnunin sér um taka sýni úr dauðum íslenskum refum og rannsaka. Í samtali við Esteri Rut Unnsteins­dóttur, líffræðing hjá Náttúru­fræði­stofnun Íslands, stað­festir hún að þau Jón Helgason hafa verið í samskiptum vegna fjölda dauðra yrðlinga vestur á Horn­bjargi.

Aðspurð hvort hún telji líklegt að um fuglaflensu­smit sé um að ræða svarar hún: „Ég get engu svarað um það, en þessir yrðlingar úr þessu goti hafa verið með líkamlega áverka.“ og bætir við að ekki sé útilokað að þeir hafi verið drepnir af öðru dýri.

Aðspurð hvort óeðlileg afföll hafi verið í refa­stofninum í ár svarar hún: „Það var óeðlilega lítið af yrðlingum á Horn­ströndum í ár, en öll dýrin virtust heilbrigð og við sáum enga veika fugla. Svo ekkert staðfesti það að við þyrftum að bregðast við út af fugla­flensu.“

Staðfest fuglaflensusmit í rauðrefum

Náttúru­fræði­stofnun Íslands sendi á veiðimenn um land allt skýrslu og beiðni þess efnis að senda stofnunni hræ af dýrum sem fallið hafa til við grenja­vinnslu svo hægt væri að taka sýni fyrir skönnun. Upplýsingar og greinar erlendis frá hafa sýnt að rándýr sem hafa étið veika fugla smitist af flensunni, og má þar á meðal nefna rauðrefi – og yrðlingar hafa drepist. Ester útskýrir að lítið hefur nást að rannsaka málið hérlendis þar sem yrðlingar fæðast að vori um svipað leyti og farfuglarnir komi. „En við höfum ekki heyrt um neitt alvarlegt atvik sem vakti miklar grun­semdir hér,“ bætir Ester við.

Ekki liggja nákvæmar upplýsingar um hvort spendýr sem smitist af flensunni geti smitað önnur spendýr, en gefið hefur verið út að þessi stofn af veirunni sé sérstak­lega smitandi. „Það sást einmitt af fréttum hérlendis að súlan var mjög útsett fyrir þessu. Það er fugl sem er í mjög þéttu varpi,“ útskýrir Ester.

Íslenski refastofninn

Íslenski refa­stofninn hefur verið í hámarki í mörg ár og telur um það bil 9.000 dýr og er stærsti stofninn í Evrópu að Rússlandi utantöldu. Stofninn hér telur 90 prósent af öllum stofninum í Norður­löndunum. „Við eigum okkar sterka stofn sem þó getur verið viðkvæmur fyrir utan­aðkomandi sýkingum, eins og algengt er með stað­bundna stofna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið