Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Sturla er læknirinn sem er borinn þungum sökum: „Ekki sæmandi að ávarpa allar konur sem prinsessur“

Sturla B. Johnsen heimilis­læknir segist aldrei hafa brotið kynferðis­lega á sjúklingi né öðru fólki. Hann virðurkennir þó að hann hafi verið ónærgætinn í orðavali. DV greindi fyrr í dag frá því að hann sé kominn í leyfi frá störfum vegna slíkra ásakana.

Sturla segir í yfir­lýsingu að auðvelt hafi verið fyrir fólk að komast að því um hvern var að ræða í nafn­lausum ásökunum. „19. júlí síðastliðinn birtist nafnlaus færsla inni á Facebook hópnum Baráttu­hópur gegn ofbeldis­menningu þar sem bornar eru þungar sakir, meðal annars nauðgun, á heimilis­lækni og honum lýst þannig að þeir sem vilja vita eiga auðvelt með að komast að því um hvern ræðir. Síðar í umræðu­þræðinum er ég svo nafn­greindur sem sá læknir. Ég vil byrja á því að taka hér fram að ég hef aldrei brotið kynferðis­lega gegn öðrum einstaklingi. Aldrei. Né hef ég nýtt starf mitt sem læknir til að brjóta á eða misnotaða aðstöðu mína á nokkurn hátt gegn sjúklingum mínum eða öðrum einstaklingum. Aldrei,“ segir Sturla.

Hann viðurkennir þó óvandað orðaval. „Ég get samt ekki skorast undan því, þó ég ætli ekki að fela mig á bakvið þá staðreynd, að ég er mannlegur. Mann­legheitum fylgir breysk­leiki og ég get játað mig sekan um það að ég hef mátt vera nærgætnari í orðavali við konur því það er ekki full­orðnum karlmanni sæmandi að ávarpa allar konur til dæmis sem prinsessur eða kalla þær elskulegar. Ég tek það til mín og mun vanda betur orðaval mitt í fram­tíðinni og vil biðja þær konur sem ég hef sært blygðunar­kenndina hjá með orðum mínum innilega afsökunar,“ segir Sturla.

Hann segist ætla taka sér leyfi frá störfum. „Því fylgir mikil ábyrgð að eiga í samskiptum við aðra manneskju og á það við í starfi og í lífinu almennt. Því fylgir einnig mikil ábyrgð að bera aðra manneskju þungum sökum í skjóli nafn­leyndar á samfélags­miðlum. Ég, bæði sem læknir og sem manneskja, hef ekkert að fela. Það breytir því þó ekki að því fylgir einnig mikil ábyrgð að reka heilsu­gæslu og snýr sú ábyrgð bæði að samstarfs­fólki mínu og þeim sjúklingum sem heilsu­gæsluna sækja. Af virðingu við fyrir­tækið sem ég hef ásamt öðrum lagt hart að mér að byggja upp og einnig af virðingu við það góða fólk sem þar vinnur og þangað sækir ákvað ég að taka mér leyfi frá störfum. Það erfiða skref tek ég vitandi að ég hef aldrei gerst sekur um þær þungu sakir sem á mig eru bornar. Aldrei.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið