Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Heilbrigðiskerfið brást Svanhildi – Fjölskyldan leitar til almennings

„Svanhildur hefur lengi beðið eftir því að komast til Þýska­lands í aðra aðgerð en Sjúkra­tryggingar Íslands hafa synjað umsókn hennar um fjárhags­aðstoð í tvígang. Hún stendur því frammi fyrir því að þurfa að greiða aðgerðina sjálf. Áætlaður aðgerðar­kostnaður eru 5,5 milljónir fyrir utan ferða­kostnað og uppihald. Nú er svo komið að Svanhildur þarf að komast í aðgerðina sem fyrst til að hún eigi möguleika á betri lífsgæðum. Stefnt er að aðgerðinni í sumar.“

Svo hljóðar færsla sem fjöl­skylda Svanhildar Óskar Guðmunds­dóttur deilir á Facebook en þar óska þau eftir aðstoð almenning svo hægt sé að bæta líf hennar. Svanhildur er fædd árið 1984, uppalin og búsett í Þorláks­höfn, og á tvær ungar dætur, 16 ára og 12 ára. Líkt og fyrr segir þá fær hún enga aðstoð frá Sjúkra­tryggingum Íslands.

Hún á að baki erfiða og langa veikinda­sögu en í fyrra greindist Svanhildur með nokkrar gerðir af æðaþjöppunar­heilkennum (compression syndromes). Hún greindist með MALS (Median Arcuate Ligament Syndrome), May-thurner syndrome, Nutcracker syndrome, Pelvic congestion ásamt því að vera með EDS (Ehlers-Danlos syndrome) og fljótandi nýru (migrating kidneys).

Fjöl­skylda Svanhildar segir nauðsynlegt að leita út fyrir landsteinana. „Þar sem lítil kunnátta er hér á landi á þessum sjúkdómum gekkst Svanhildur undir aðgerð í Þýska­landi 2021 sem heppnaðist vel. Þetta var fyrsta skrefið í vegferð hennar að bata. Enn glímir hún þó við vandamál sem valda henni miklu verkja­ástandi, erfið­leikum með að nærast sökum verkja og einkenna frá meltingar­vegi, miklum einkennum frá tauga­kerfi, t.d. miklum pirringi, skjálfta, svima, heilaþoku ásamt minnkandi styrk í fótum og höndum og þarf hún stundum að notast við hjólastól.“

Ef söfnunin gengur vel þá mun Svanhildur fara aftur til Þýska­lands í aðra aðgerð. „Þar mun Svanhildur gangast undir æðaígræðslu (skipta út celiac æðinni vegna mikilla þrenginga), fjarlægja mikið magn af örvef í kringum celiac æðina og hengja upp bæði nýrun til að auka blóðflæði. Við fjöl­skylda Svanhildar höfum því ákveðið, með hennar samþykki, að fara af stað með söfnun fyrir hana og höfum stofnað styrktar­reikning í hennar nafni. Við þökkum öllum þeim sem sjá sér fært að styrkja Svanhildi og munum að margt smátt gerir eitt stórt! Ef söfnun þessi gengur vel og næst að safna fyrir aðgerðar­kostnaði mun það sem umfram safnast gefast til góðgerðar­mála.“

Styrktar­reikningur Svanhildar

Kennitala: 260984-2689 Reiknings­númer: 0123-15-057954

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá