Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Árni Heimir: „Þá sem ég hef hegðað mér ósæmilega gegn bið ég afsökunar af djúpri einlægni“

Árni Heimir Ingólfsson.
Árni Heimir Ing­ólfs­son.

Árni Heimir Ingólfsson segir frá því á Facebook-síðu sinni að hann hafi undan­farin tvö ár unnið mikið í sjálfum sér, en eins og Mannlíf greindi frá hefur Bjarni Frímann Bjarnason sakað Árna Heimi um að beita sig kynferðis­ofbeldi:

Bjarni Frímann Bjarna­son.

„Kæru vinir. Eins og sum ykkar vita hef ég undan­farin tvö ár verið í mikilli sjálfs­vinnu. Þegar mér varð ljóst að ég hefði farið yfir mörk annarra án þess að gera mér grein fyrir því var augljóst í mínum huga að ég þyrfti að taka sjálfan mig í gegn.“

Hann segir að „það hefur sannarlega ekki verið auðvelt. Þá sem ég hef hegðað mér ósæmilega gegn bið ég afsökunar af djúpri einlægni og auðmýkt. Þau skref sem ég hef gengið síðustu tvö ár eru vonandi sönnun þess að ég tek málið alvarlega, og ég er stað­ráðinn í því að halda áfram að vinna í sjálfum mér.“

Árni Heimir greinir einnig frá því að hann hafi leitað sér sálfræði­aðstoðar:

„Ég hef afskaplega góðan sálfræðing og aðra sérfræðinga mér við hlið sem hafa leitt mig gegnum hvert skrefið af öðru og munu gera það áfram. Við fáum öll okkar verkefni í lífinu og þetta er hið stærsta í mínu lífi. Ég tek það alvarlega, nálgast það af auðmýkt og einlægni og þakka fyrir stuðning vina minna og fjöl­skyldu, sem mér þykir vænna um en allt annað. Ást og friður, Árni Heimir.“

Stjórn Sinfóníunnar hefur sagt frá því að málið verði skoðað vandlega; en í færslu Bjarna Frímanns kemur fram að hann telji stjórn Sinfóníunnar hafa brugðist sér algerlega, en eftir færsluna virðist sem stjórn Sinfóníunnar hafi ákveðið að hlusta á kvartanir Bjarna Frímanns.

Mannlíf mun halda áfram að fjalla um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning