Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Unnur Ösp segist særð eftir gagnrýnina – Á fatlað barn: „Það hryggir óendanlega“

Unnur Ösp Stef­ánsdóttir, leik­stjóri söng­leiksins Sem á himni, segir sig knúna til að stinga niður penna og koma leik­ritinu til varnar. Nína Hjálmars­dóttir, gagn­rýnandi á RÚV, var ekki hrifin af verkinu, sem frumsýnt var á stóra sviði Þjóð­leikhúsinu á dögunum, og sagði verkið niður­lægja fatlaða.

Þrátt fyrir þetta segir Unnur Ösp að málefni fatlaðra standi henni nærri enda eigi hún fatlað barn. Hún skrifar á Facebook: „Ég finn mig knúna til að stíga inn í umræðu um gagnrýni á leik­sýninguna Sem á himni. Sýningu sem ég ber ábyrgð á að leikstýra og þar með taka endanlega listrænar ákvarðanir um.  Málefni fatlaðra standa mér persónu­lega mjög nærri. Ég þekki það af eigin raun hvernig er að eiga fatlað barn sem tekst á við sambærilegar ef ekki návæmlega sömu áskoranir og persóna Dodda, fatlaða drengsins í umræddu verki. Ég ákvað að taka að mér leik­stjórn á þessari sögu m.a. af þeirri ástæðu að vekja athygli á stöðu fatlaðra í samfélagi okkar. Því miður erum við stutt komin þegar kemur að réttindum og virðingu þessa hóps, því mæti ég á hverjum degi,“ segir Unnur.

Hún segir fatlaða þurfa að standa frammi fyrir ýmsu mótlæti. „Þeim er útskúfað, þau komast ekki í framhaldsnám, þeim er vísað úr íþrótta­hreyfingunni, þykja ekki passa í hópinn. Auðvitað er þetta ekki alls staðar raunin, en því miður of víða. Það er þess vegna sem þessi einfalda sögn, sem er í raun grunn þráður verksins Sem á himni, er mér mikilvæg. Að við sem samfélag virkum ekki nema við hleypum öllum að borðinu. Í tilfelli Dodda í verkinu finnur kórinn ekki sinn “rétta” tón fyrr en fatlaði einstaklingurinn fær að syngja með. Þetta er djúp og mikilvæg sögn fyrir mig persónu­lega. Að eiga fatlað barn er yndislegt og mín stærsta gjöf í lífinu en það getur líka verið brútal, ljótt, erfitt, vandæðalegt, banalt og óþægilegt,“ segir Unnur Ösp.

Hún segist særð eftir þetta. „Það sem særir því óendanlega mikið í þarfri og magnaðri umræðu sem ég fagna manna mest er sú tilfinning mín að þegar við sýnum sannleika þessarar persónu í sinni tærustu mynd, þá finnst okkur áhorf­endum erfitt, jafnvel óbærilegt að horfa á það. Það er ekki rétt gert, það er leikið af röngum aðila, við hefðum átt að milda, breyta, sleppa, strika hlut­verkið. Í lífi sumra eru þessar áskoranir sem persónan fæst við daglegt brauð. Ég vildi því síst milda það eða fara um það mjúkum höndum. Ég vildi alls ekki draga úr þeim ömurlegu fordómum sem persónan mætir af samfélaginu í sögunni. Ég valdi að fá næman listamann til að túlka þessa persónu af virðingu, skilningi og kærleika. Það hryggir óendanlega ef það kemur ekki yfir til allra.“

Hún segir samt mikilvægt að eiga þetta samtal. „Við eigum að þora inn í þetta erfiða samtal. Það er sársauki í þessu samtali en við verðum að taka það. Þannig hreyfum við samfélagið og tilveru­rétt fatlaðra persóna í sögunum sem við viljum segja í leik­húsinu. Og ekki síst þurfum við fókus á réttindi fatlaðra í samfélaginu öllu, stofnunum þess, listnámi og víðar. Raddir fatlaðar verða að heyrast og það sem aldrei fyrr. Og það á vettvangi sem getur náð augum og eyrum sem flestra. Þessi umræða er miklu stærri og mikil­vægari en einstaka leik­sýning. Við í Þjóð­leikhúsinu boðum til málþings um leikhúsið og birtingar­mynd raun­veruleikans innan þess og stígum af þunga inn í þessa umræðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning