Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Rík hjón dæmd í fangelsi fyrir mannsal: „Þið tókuð öll þátt í viðbjóðslegu braski“

Ekweremadu hjónin
Ekweremadu hjónin

Auðug hjón sem hugðust flytja ungan mann til Bretlands svo þau gætu tekið úr honum nýra handa nýrna­veikri dóttur þeirra, hafa verið dæmd í fangelsi.

Samkvæmt Mirror fékk Ike Ekweremadu níu ára fangelsisdóm og átta mánuði að auki en þetta er í fyrsta skipti sem einhver er dæmdur fyrir líffæra­brask í Bretlandi. Eiginkona hans, Beatrice, fékk fjögurra og hálfs árs fangelsisdóm og læknirinn Dr. Obinna Obeta fékk 10 ára dóm. Dóttir þeirra, Sonia, var sýknuð af ákærunni.

„Viðbjóðslegt brask“

Yfir­dómari réttarins sagði við réttar­höldin, sem var sjón­varpað: „Mannsal yfir landamæri í þeim tilgangi að braska með líffæri, er ein tegund þræla­halds. „Það meðhöndlar manneskjur og líkams­hluta þeirra sem vörur sem hægt er að kaupa og selja. Þetta er brask sem nýtir sér fátækt, eymd og örvæntingu. Þið tókuð öll þátt í viðbjóðs­legu braski.“

Varðandi þann skaða sem fórnar­lambið hefði orðið fyrir ef hjónunum hefði tekist ætlunar­verk sitt, sagði dómarinn: „Hann hefði þurft að eyða restinni af ævinni með aðeins eitt nýra og án tilskilins fjármagns fyrir nauðsyn­lega eftir­meðferð.“ Bætti hann við að áhættan hafi ekki verið útskýrð fyrir manninum og að hann hafi ekki samþykkt þetta „í hvaða merkingu sem er“.

Vel skipulagt

Áður en dómurinn féll, kom fram að Ike, sem er sextugur þingmaður í Nígeríu, og eiginkona hans, Beatrice, 56 ára, væru sökuð um að leggja á ráðin um að flytja ungan mann frá Nígeríu til Bretlands til að fá hjá honum nýra. Þá var milli­göngumaður þeirra Dr. Obinna Obeta, fimmtugur, einnig kærður en þau höfðu búið til ítarlega sögu til að reyna að komast upp með þetta en meðal annars notuðu þau tengsl sín til að redda manninum dvalar­leyfi.

Fórnar­lambið er 21 árs gamall götu­sölumaður frá Lagos en hann átti að fá tæpar 14 milljónir króna fyrir nýrna­aðgerð í Royal Free spítalanum í London. Þegar á hólminn var komið reyndist hann ekki hentugur nýrna­gjafi og hófu hjónin því að leyta að nýrna­gjafa í Tyrklandi.

Það er löglegt að gefa frá sér nýra en það er ólöglegt að borga einhverjum fyrir það. Aðspurð af hverju þau hafi ekki beðið einhvern úr fjöl­skyldunni að gefa dóttur þeirra nýra, svöruðu hjónin: „Við vildum að áhættan sem fylgdi þessu myndi lenda á einhverjum sem við þekktum ekki.“

Mætti grátandi á lögreglustöð

Rannsókn hófst á málinu eftir að hinn ungi maður fór til lögreglunnar eftir að hafa sofið á götunni í nokkra daga. Er hann kom á lögreglu­stöðina var hann grátandi og í uppnámi.

Fórnar­lambið, sem ekki er nafn­greindur af lagalegum ástæðum, sagði fyrir rétti að hann hefði einungis frétt hvað stæði til þegar honum var ekið á spítalann í Norður-London. Í yfir­lýsingu frá honum sem lesin var upp í réttinum sagði hann: „Ég hefði aldrei samþykkt þetta. Líkami minn er ekki til sölu.“ Þá talaði hann um að hann óttaðist eigið öryggi sem og öryggi fjöl­skyldu sinnar í Nígeríu sem hefðu fengið heimsókn og hún beðin um að hætta við ákæruna. „Ég get ekki hugsað mér að fara heim til Nígeríu. Þetta fólk er gríðar­lega valda­mikið og ég hef áhyggjur af fjöl­skyldu minni. Jafnvel þótt ég búi eins og er í Bretlandi, veit ég að ég þarf að fara varlega. Ég hef engan að hér, enga fjöl­skyldu, enga vini. Ég þarf að byrja líf mitt upp á nýtt. Ég hef áhyggjur af fjöl­skyldu minni í Nígeríu en mér var sagt að pabbi hafi fengið heimsókn og honum sagt að stöðva ákæruna.“

Sagði hann lögreglunni að hann vildi ekki krefjast bóta frá „slæmu fólki“ því að því fylgdi „álög og slæm lukka“.

„Ætlun mín nú er að vinna og mennta mig og spila knatt­spyrnu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Mette Frederiksen segir gagnrýni á orðaval sitt ekki lýsa afstöðu sinni. Ummæli hennar í stjórnmálahlaðvarpi hafa vakið umræðu í Danmörku.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár