Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Kristinn segist ranglega bendlaður við morðið á Tómasi: „Búið að vera stanslaust helvítis áreiti“

Kristinn Kristinsson
Kristinn Krist­ins­son Mynd: Facebook

Kristinn Kristinsson segist saklaus af morðinu á Tómasi Waagfjörð en myndband þar sem Kristinn sést hóta Tómasi lífláti hefur farið eins og eldur í sinu um samfélags­miðla og fjölmiðla undan­farinn sólar­hring.

Saklaus

„Ég er saklaus. Þetta er búið að vera stans­laust helvítis áreiti með árásum á mig síðan ég fór suður til að sækja vinkonu mína,“ segir Kristinn Kristinsson í samtali við DV, en hann hefur að undan­förnu, að virðist að ósekju, verið bendlaður við dauðsfall Tómasar Waagfjörð, sem stunginn var til bana í íbúð á Ólafs­firði, á aðfara­nótt mánudags.

Hvergi hefur verið sagt í fjöl­miðlum að Kristinn tengist morðinu sjálfu en hann var ekki á staðnum þegar það var framið. Þrjár manneskjur eru nú í gæslu­varðhaldi vegna rann­sóknar á málinu, tvær konur en önnur þeirra er eiginkona Tómasar og einn karlmaður, vinur eigin­konunnar. Höfðu þeir Tómas átt í deilum vegna konunnar um nokkurt skeið.

Sjá einnig: Tómasi heitnum barst morðhótun í mars: „You are going to die really soon“

Tómas birti myndband síðastliðinn mars þar sem hann sagði Kristinn hóta sér og syni sínum morði. Eins og segir hér fyrir ofan hefur mynd­bandinu verið dreift manna á milli á samfélags­miðlunum og hafa miðlar á borð við Mannlíf birt það. DV segir að lesendur hafi sent mynd­bandið á miðilinn og sagt Kristinn vera banamann Tómasar. Það er ekki rétt enda var hann ekki á staðnum þegar morðið var framið.

Ekkert leyndarmál

Kristinn, sem er íbúi í Ólafs­firði, segir það ekkert leyndarmál að þeir Tómas hafi verið óvinir en hann ber Tómasi illa söguna. Ofbeldi hafi verið í sambandinu og hann leitast við að vernda vinkonu sína, eiginkonu Tómasar.

„Ég skoða ekki einu sinni fréttir en svo rak ég augun í þetta þá bara sprakk ég,“ sagði Kristinn um viðbrögð sín við frétta­flutningum er hann talaði við DV.

Segir Kristinn að lögfræðingur sinn hafi bannað honum að tjá sig um málið en hann geti ekki þagað eftir að hafa verið ranglega bendlaður við morðið. Segist hann aldrei hafa verið hand­tekinn vegna málsins.

Kristinn viðurkenndi í öðru samtali við DV árið 2021 að hann hafi sprengt heima­tilbúna sprengju í Ólafs­fjarðar­göngum en sprengingin olli milljóna­tjóni. Var hann í viðtali vegna þess að búið var að bera hann út úr leiguíbúð sinni eftir bruna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning