Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Davíð Þór segir að flóttamenn megi ekki flytja inn „ómenningu“

Séra Davíð Þór Jónsson, sóknar­prestur í Laugar­neskirkju, hristi upp í mörgum nýverið þegar hann á Facebook-síðu sinni skaut hörðum skotum að ríki­stjórninni vegna málefna flótta­manna og hælis­leitenda og notaði meðal annars orðið „helvíti“ í þeim pælingum. Hann fékk í kjölfarið tiltals­bréf frá biskupi sem hann líkir við gula spjaldið. Í viðtali við Mannlífið með Reyni Trausta­syni ræðir hann meðal annars um þessar pælingar sínar, tiltals­bréfið og flótta­menn. Þá ræðir hann einnig um Radíus­bræður og húmor og svo er það dauðinn.

Davíð Þór segir að hann hafi orðið vinstri­sinnaðri við það að starfa sem prestur. „Ég verð alltaf róttækari og róttækari og rauðari og rauðari í pólitík eftir því sem ég er prestur lengur og sé betur og kynnist betur fólkinu sem okkar kapítalíska hagkerfi er að skilja út undan.“

En hverju vill hann helst breyta?

„Ég vil sjá okkur taka vel á móti fólki á flótta og sjá okkur setja stórfé í að hjálpa því að aðlagast. Það er fjár­festing í borgurum, nýjum og nýtum borgurum, vegna þess að okkur vantar mannskap. Það hefur komið í ljós að það tekur tvö ár fyrir meðal­hælis­leitandann að borga sig upp. Það er að segja hann er búinn að borga til baka það sem var sett í að hjálpa honum til að koma sér fyrir og aðlaga sig. Á tveimur árum er hann búinn að borga það til baka í tekju­sköttum og neyslu­sköttum. Ef hann á bíl sem eyðir miklu bensíni þá ábyggilega miklu fyrr. Það þarf ekki einu sinni sérstak­lega þolinmótt fjármagn til að líta á það sem góða fjár­festingu að taka á móti fólki og hjálpa því að koma sér hérna fyrir,“segir Davíð Þór.

Þrátt fyrir þetta þá segir hann nauðsynlegt að gæta þess að fólk flytji ekki inn „ómenningu“. Davíð segir: „Auðvitað þýðir það ekki að við eigum hér að opna dyr okkar fyrir hverjum sem er; ég meina, fólk þarf að laga sig að grundvallar­reglum samfélagsins. Ég er ekki að segja að taka upp íslenska menningu. En það eru ákveðnir hlutir sem ég vil kalla ómenningu sem tíðkast í sumum löndum eins og lýsir sér í kvenna­kúgun og nátt­úrlega óréttlætanlegri afstöðu til hinsegin og kynsegin fólks og svo framvegis.“ Davíð Þór segir að það þurfi þá að segja að ákveðnir hlutir séu ekki í boði hér í samfélagi okkar.“

Viðtalið við Davíð Þór má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá