Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

„Kannski er þetta svona í menntastofnunum sem ég hef aldrei komið í enda ómenntuð láglaunakona“

Sólveig Anna Jónsdóttir.
Sólveig Anna Jóns­dóttir.

Sólveig Anna Jóns­dóttir lætur móðan mása um atburði síðustu daga innan verkalýðs­hreyfingarinnar:

„Ýmsir gáfaðir menn með mörg háskóla­próf hafa stigið fram í viðtölum á síðustu dögum, til að tjá sig um átökin í Alþýðu­sambandinu. Þar eru þeir eru beðnir um að útskýra og greina atburðina fyrir okkur vesalingunum. Þessir gáfuðu menn eru oftast sammála hinnu bitru valda­klíku ASÍ: enginn málefna­legur ágrein­ingur, deilur snúast bara um persónur og völd.“

Hún bætir við:

„Það væri kannski hægt að skilja þessa undarlegu vitsmuna­fátækt hinna gáfuðu manna ef að risa­vaxinn undir­liggjandi hugmynda­fræðilegur ágrein­ingur innan ASÍ hefði farið hljótt eða jafnvel verið einhvers konar leyndarmál. En svo er nú aldeilis ekki. Ég hef margoft tjáð mig um þennan ágreining um markmið og leiðir, í greinum í blöðunum og í Facebook-statusum. Allt er þetta efni aðgengilegt fræði­mönnum, heimildir sem að þeir geta plokkað sem ávexti af trjánum og unnið úr með sínum fræðilegu vinnu­brögðum.

Í sumar gekk ég meira að segja svo langt að skrifa greina­flokk í fjórum pörtum þar sem ég rek í ítarlegu máli, með vísun í ótal dæmi, bæði rætur og birtingar­myndir þess hvernig ASÍ hefur misheppnast að laga sig að nýjum straumum í stærstu verkalýðs­félögum okkar lands. En enginn þessara gáfuðu manna hefur svo mikið sem vikið einu orði að skrifum mínum um viðfangs­efnið, það er líkt og að þau séu ekki til í þeirra augum. Það er mjög áhugavert og vekur áhuga­verðar spurningar.

Til dæmis um það hvers vegna svo gáfaðir menn, væntanlega með mikla gáfumanna-sjálfs­virðingu, gera í sífellu nokkuð sem þeir myndu væntanlega hneykslast á hjá nemanda sem væri í námskeiði hjá þeim til að læra hvernig á að vera gáfaður: Að mæta algjör­lega ólesinn í próf, vera ekki búinn að lesa neitt heima, standa á gati og skila þar í stað svara einhverju babbli upphugsuðu á staðnum. En hvað veit ég, kannski er þetta einmitt svona í hinum virðulegu mennta­stofnunum sem ég hef reyndar aldrei komið í enda ómenntuð láglauna­kona.“

Sóveig Anna segir að „það gladdi mig þó að hlusta á Sigrúnu Ólafs­dóttur félags­fræðing í dag í Silfrinu. Hún benti á að hugsanlega gæti verið einhver undir­liggjandi málefna-ágrein­ingur. Kannski gæti hann snúist um það hvernig við eigum að skipta auði í samfélaginu og, eins og hún orðaði það, hversu mikinn ójöfnuð erum við til í að samþykkja. Sigrún vísaði til umræðunnar víða um um heim um það hvers vegna vinstri­flokkar hafa skilið eftir láglaunafólk og farið í staðinn að hugsa mestmegnis um áhugamál milli­stéttarinnar.

Sigrún dirfðist að velta því upp hvort þetta væri kannski ein „undiralda“ þess sem er að spilast út fyrir framan okkur. Og hér er ein tilvitnun í Sigrúnu úr Silfri dagsins sem að mér fannst góð:

„Kannski erum við að reyna að husga um hvort að viljum bæta samfélagið fyrir alla.“

Og: „Erum við að tala um einhverja grundvallar­byltingu á hvernig við skiptum lífsæ­gæðum og hvernig við skiptum kökunni. Og þurfum við að byrja upp á nýtt?““

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning