Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Sindri Ploder, listamaður með Downs, teiknar og gerir skúlptúra: Gluggabréf eru sérlega skemmtileg

Sindri Ploder er ungur maður sem vakið hefur athygli fyrir myndir sínar og skúlptúra. Hann er með Downs-heilkenni og er lífs­glaður og sáttur í eigin skinni að sögn móður hans, Svöfu Arnar­dóttur, og lætur hann ekki fötlunina hamla sér; hún segir að hans helsta fötlun sé mikil heyrnar­skerðing sem getur gert samskipti erfið við þá sem ekki skilja tákn með tali.

Mannlíf hafði samband við þau mægðin til að kynnast Sindra og lista­verkum hans. Svafa kom spurningum blaða­manns áleiðis til Sindra og svaraði svo fyrir hans hönd.

Sindri hefur haft gaman af því að teikna frá því hann var strákur og undan­farin ár hefur hann lagt áherslu á að teikna andlit og að gera skúlptúra. (https://www.facebook.com/tilverur)

Sumir eru grimmir og reiðir en flestir eru glaðir

„Honum finnst bara sjálfsagt að myndirnar hans líti svona út og það er gaman að teikna andlit og alls kyns svip­brigði. Sumir eru grimmir og reiðir en flestir eru glaðir. Frændi hans gaf honum rafmagnsút­skurðarhníf og Sindri fór að skera kalla út í trédrumba sem áttu að notast sem eldiviður. Honum finnst líka gaman að tálga greinar með hníf og búa til stóra göngu­stafi eins og tröllin nota til að ferðast um fjöllin. Honum finnst gaman að drekka úr fallegum bollum og það er mjög gott að drekka sódavatn úr Sindrakrús,“ segir Svafa, en fram­leiddar eru krúsir með myndum eftir Sindra. Svafa og faðir Sindra, Björgvin Ploder, bjuggu krúsirnar til og segir Svafa að Sindra finnist ekki gaman að vera með í að búa til krúsir. „Hann vill bara teikna myndirnar sem fara á krúsirnar, en við getum gert rest.“ Þess má geta að krúsirnar fást í Álfagulli í Hafnar­firði.

Teppin í framleiðslu

Sindri hefur tekið þátt í ýmsum sýningum. Hann tók meðal annars þátt í hönnun leik­myndar tékknesks leikhúss fyrri hluta ársins 2016 fyrir leikgerð á Skugga-Baldri eftir Sjón, sem sýnt var í Hafnar­húsinu nokkrum sinnum og er enn í sýningu í Prag.

„Árið 2016 kom leik­stjóri, Kamila Políková, frá Prag í Hitt húsið þar sem Sindri var að teikna og vildi fá hann til þess að vera með í að búa til leikmynd fyrir leikgerð af Skugga-Baldri eftir Sjón. Það var sett upp í Hafnar­húsinu og þar var hann í marga daga með þeim að teikna. Það þótti honum gaman og svo sá hann leikritið. Árið 2019 bauð leik­stjórinn honum út til Prag að sjá sýninguna þar, svo Sindri fór þangað með okkur foreldrum sínum. Flestir sem að sýningunni standa buðu honum svo í ferðalag um Tékkland þar sem hann sá kirkju sem búin var til úr manna­beinum og það þótti honum flott. Fullt af hauskúpum og örugglega draugum. Svo fór hann í mjög margar stórar og gamlar kirkjur og fékk góðan mat.“

Teikn­ingar Sindra voru not­aðar á ull­ar­teppi sem Mundi hann­aði

Sindri tók þátt í samsýningu á vegum Listar án landamæra 2017 þar sem hann vann með hönnuðinum Munda vonda þar sem teikningar Sindra voru notaðar á ullar­teppi sem Mundi hannaði. Sindri tók einnig þátt í List án landamæra 2019 þar sem hann sýndi ullar­teppin og nýja tréskúlptúra. Einnig sýndi hann með List án landamæra í Bókasafni Seltjarnarness í október 2020. Fyrsta einka­sýning hans var í Listasal Mosfells­bæjar janúar–febrúar 2021 og í desember 2021 tók hann þátt í samsýningu í Núllinu (Banka­stræti) ásamt öðrum ungum lista­mönnum.

Þegar Sindri hélt sýningu í Listasal Mosfells­bæjar í fyrra voru nokkur teppi til sýnis sem Sindri og hönnuðurinn Mundi vondi unnu saman fyrir List án landamæra 2017. Að sögn Svöfu vildu margir kaupa svona teppi, en þau voru öll í einkaeigu svo hún og faðir Sindra töluðu við Varma og þar voru prjónuð svona teppi úr lambsull. „Þau eru mjúk og stinga næstum ekkert. Sindri fékk líka að skoða verksmiðjuna og allar prjóna­vélarnar og valdi svo liti. Það áttu að vera þrenns konar lita­samsetningar en Sindri vildi hafa fjórar þannig að teppin eru blá/hvít, svart/hvít, græn/hvít og appelsínugul/svört. Honum finnst appelsínu­gula teppið flottast og á eitt svoleiðis sjálfur.“ Teppin, eins og krúsirnar, fást í Álfagulli.

Tónlist, leikhús og ferðalög

Það sem Sindra finnst skemmtilegast að gera fyrir utan að teikna er að hlusta á tónlist, fara í leikhús og ferðast og þá helst til útlanda. „Ekki er verra ef þetta tvennt fer saman og hefur hann farið í leikhús í London, New York og Prag. Hann á stórt búninga­safn og bregður sér reglulega í allra kvikinda líki og setur upp leik­sýningar í stofunni.“

Hvað með hindranir?

„Honum finnst hann hvergi mæta neinum hindrunum og það er bara ágætt að vera ekki eins og aðrir. Honum finnst líka gaman að fara til tann­læknis og að fá bréf; glugga­bréf eru sérlega skemmtileg.“

Hvað er það skemmtilegasta sem Sindri hefur gert og hvað er það erfiðasta?

„Það skemmtilegasta sem hann hefur gert er að fara til útlanda, en það leiðinlegasta er þegar stóri bróðir hans dó,“ segir Svafa, en stóri bróðir Sindra hét Fróði og lést í apríl 2020 28 ára gamall.

Blessuð sé minning hans.

Viðtal þetta birtist fyrst 17 febrúar 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið